Úrval - 01.11.1971, Qupperneq 80
78
ÚRVAL
var, og sá, hvernig allt fór fram, og
hún undraöist vizku konungs og
dýrð. Reykelsi var brennt, meðan
á máltíðinni stóð, og loftið í salnum
var þrungið yndislegum ilmi dýrra
ilmvatna.
Salómon hafði gerhugsað og und-
irbúið hvað gera skyldi nótt þessa
til þess að honum tækist að vinna
ástir Balkis. Samkvæmt áætluninni
átti að veita henni mjög kryddaða
fæðu, og var þetta þýðingarmikill
þáttur áætlunarinnar. Tíu réttir
voru bornir fram hver af öðrum,
og drottningunni voru bornir kjöt-
réttir, er vekja skyldu þorsta henn-
ar, og kryddaðir drykkir, er ekki
skyldu slökkva þorsta hennar.
Að lokum lauk veizlunni, og ráð-
gjafar konungs og hirðmenn héldu
á brott. Safómon konungur og
drottningin frá Saba voru ein eftir,
og að lokum gekk hann á bak við
hlífina að borði hennar.
Salómon sagði við hana:
„Ger það fyrir mig að hvílast hér
allt til dögunar.“
Þetta voru fyrstu orðin innilegs
eðlis, er hann hafði til hennar mælt
þá sex mánuði, er hún hafði dvalið
í höll hans.
Drottningunni frá Saba var ómótt,
og hún fann letikennd seytla um
allan líkamann. Hún hafði etið og
drukkið of mikið. Frammi fyrir sér
sá hún manninn, sem hún hafði dáð
svo mjög, að hún hafði lagt upp í
hina miklu ferð og ögrað hættum
eyðimerkurinnar. Hann var klædd-
ur dýrlegum veizluklæðum, en hinn
konunglegi virðuleikablær var nú
horfinn úr svip hans, og hann talaði
brosandi til hennar, líkt og karl-
maður ta'lar til konu. Hún tók enn
eftir því, hversu myndarlegur og
glæsilegur hann var, og nú litu augu
hans á hana á nýjan hátt. Það hlýt-
ur að hafa verið á þessu augnabliki,
að hún gerði sér grein fyrir því,
hversu heitt hún unni honum.
En hún var hrædd. Hvað myndi
þjóð hennar segja, ef hún giftist
honum? Hún hafði ríkt í sex ár sem
meydrottning... það var hennar
hlutverk, Salómon myndi ekki
halda heim í konungsríki hennar
sem eiginmaður hennar. Hún gat
ekki dvalið áfram hjá honum í
konungsríki hans.
Hún fann til hríslandi vellíðun-
arkenndar í sál og líkama að veizl-
unni lokinni, en samt var sem skiln-
ingi hennar ykist ásmegin og ótta
hennar einnig. Hún gat elskað þenn-
an mann, og hún gat séð, að hann
elskaði hana einnig ... eða girntist
hana að minnsta kosti. Ást þeirra
gæti alls ekki fært þeim gæfu. Þótt
þau giftust, og það var auðvelt að
koma því kring í þá daga, yrði hún
samt að halda heimleiðis og lifa
alla sína ævi í minningum nokkurra
sætra augnablika.
Drottningin frá Saba var því
hrædd. Hún sagði:
„Sver þú mér í nafni guðs, guðs
ísraels, að þú munir ekki taka mig
með valdi. Samkvæmt lögum mann-
anna er ég enn hrein mey, og yrði
ég tæld, myndi ég halda leiðar
minnar í sorg og þrúgandi kvöl.“
Salómon hafði einmitt óskað sér
slíkra viðbragða frá hennar hálfu,
og hann hafði því svar á reiðum
höndum. Hann svaraði:
„Ég sver þér, að ég muni ekki