Úrval - 01.11.1971, Side 82
80
ÚRVAL
„Heíurðu nokkurn tíma augum
litið nokkuð í guðs grænni veröld,
sem er betra en vatn?“
Drottningin andvarpaði. Hún
gerði sér grein fyrir því að Salómon
hafði unnið leikinn, og sagði því:
„Ég hef syndgað gegn sjálfri mér
og hef rofið eið minn. En leyfið mér
samt að slökkva þorsta minn‘“
Salómon var himinlifandi yfir því
hversu framkvæmd áætlunar hans
hafði farið vel úr hendi. En hann
vildi vera fullviss um, að Balkis
þráði hann í raun og veru. Því lagði
hann hönd sína á öxl henni og sagði,
um leið og hann leit í augu henni
og brosti við:
„Er ég ef til vill leystur undan eið
þeim, er þú lézt mig sverja þér?“
Og hún brosti við honum og leit
hugfanginn á hann, en þó með
stríðnisglampa í augum, líkt og
hann væri ekki voldugur og vitur
konungur, og sagði:
„Sértu leystur undan eiði þínum,
en leyf mér bara að slökkva þorsta
minn.“
Og þannig giftust þau, Salómon
konungur og drottningin frá Saba,
og hin raunverulega ósk hennar, er
hún hafði skynjað svo seint, rættist
nú. En hún varð að halda næstum
taflarlaust heim til lands síns og
þjóðar.
Áður en hún yfirgaf hann, gaf
hann henni marga fagra og dýr-
mæta gripi af gnægð auðæfa sinna.
í lestinni, sem hún hélt með frá
Jerúsalem heim til Eþíópíu, voru
sex þúsund úlfaldar og fjöldi eyði-
merkurvagna. Hann gaf henn einnig
skip, og hin eþíópiska saga skýrir
svo frá, að hann hafi gefið henni
nokkurs konar flugvél.
Hann kallaði hana á sinn fund,
er hún var að leggja af stað og dró
hring af litla fingri sínum, gaf henni
og sagði:
„Tak hring þennan, svo þú megir
aldrei gleyma mér. Og fari það svo,
að þú hafir frjóvgazt af sæði mínu,
skal hringur þessi vera þess tákn.
Verði það sveinbarn, skal hann
koma á minn fund. Og megi friður
guðs hvíla yfir þér!“
Ósk Salómons rættist. Balkis ól
honum son. Drengurinn var kallað-
ur Menelik. Nafn það bera stjórn-
endur Eþíópíu enn þann dag í dag,
og þeir segja, að þeir séu komnir af
Menelik — og því einnig af Saló-
mon konungi og hinni fögru drottn-
ingu frá Saba.
Konu einni, sem var óskaplega áhugasamur bridgespilari, var til-
kynnt það af fæðingarlækninum á fæðingardeildinni, að hún væri ný-
feúin að eiga tvíbura, en ekki aðeins eitt barn, eins og hún hafði búizt
við. Þá varð henni að orði: „Ja, feetta er þó líkt honum Harry, að
'dobla mig, þegar ég var á hættu."
Chaválit A. Manjikul.