Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 106

Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 106
104 ÚRVAL að árangurinn kæmi sífellt í ljós ár eftir ár.“ Standi maður bara kyrr og öskri ekki í kapp við andstæðinginn, kemst maður oft að því, að með mörgum andstæðingnum leynist raunveruleg mannleg vera, sem get- ur brugðist við á mannlegan hátt. Ég hef það fyrir venju að álíta eng- an vonlausan á þessu sviði. Allan þennan tíma hef ég verið þátttak- andi í friðsamlegri byltingu, bylt- ingu, þar sem hefur ekki verið grip- ið til ofbeldis. Regla mín er sú að gera öðrum það, sem maður vildi, að þeir gerðu manni sjálfum. Ég segi hvíta fólkinu, sem völdin hef- ur, að ég sé ekki að reyna að hrifsa neitt frá því. Ég segi því, að ég sé að reyna að gera Mississippifylki að betri stað fyrir okkur öll. Ég hef alltaf trúað því, að ein- hvern tíma breytist lífið í þessu landi, jafnvel þó að mér auðnist kannski ekki að lifa svo lengi. Ég hef alltaf trúað því, að þetta land yrði einhvern tíma að betri stað fyrir okkur öll, að landi, þar sem þekktust ekki hengingar né aftökur án dóms og laga né dráp og sprengjuköst. Við eigum að gæta bróður okkar, hvort sem hann er svartur, hvítur, brúnn, rauður eða gulur. ORÐSENDINGIN HEFUR KOMIZT TIL SKILA Árið 1969 var Charles Evers kos- inn bœjarstjóri í Fayette í Missis- sippifylki, fyrsti svarti bæjarstjór- inn í „blönduðum“ bæ (þ.e. þar sem búa bœði hvítir og svartir) frá því að Suðurríkin fengu aftur full rétt- indi í ríkjasambandinu árið 1867. Hann er mœlskur og hreinskilinn og hefur barizt gegn kynþáttaað- skilnaðarstefnunni allt sitt líf. Hann hefur orðið fyrir þeirri bitru reynslu, að þeir þrír menn, sem stóðu honum nœst, féllu íyrir morð- ingjahendi. Þar er um að rœða þá Medgar bróður hans, Martin Luther King yngri og Robert Kennedy. Medgar var þrem árum yngri en ég. Þegar við vorum drengir heima í Decatur í Mississippifylki, vorum við vanir að fara í búðina á sunnu- dagsmorgnum. í þessum sveita- verzlunum héngu alltaf hvítir karl- ar aðgerðarlausir. Þeir kjöftuðu saman og tuggðu munntóbak. Og í hvert skipti sem blökkudrengur kom inn í búðina, létu þeir hann dansa eða gera eitthvað annað kjánalegt. Ég fékkst aldrei til þess að dansa fyrir þá. Ég minnist þess, að einn þeirra ýtti við mér og sagði: ,,Það væri. vissara fyrir þig að dansa!“ Ég hljóp alla leið heim. Þá var ég bara lítill snáði, en ég sagði við Medgar bróður minn: „Einhvern tíma ætla ég að eiga búð, og þá ætla ég að láta hvíta fólkið dansa.“ Ég losnaði úr hernum árið 1946. Ég hafði lagt fyrir svolítið fé. Og svo opnaði ég svolitla matvöruverzl- un, þegar ég kom heim. Ég lét pabba og mömmu reka hana. Blökkufólkið gat komið þangað inn óhrætt um, að það yrði fyrir aðkasti, yrði kallað ,,niggarar“ eða látið dansa eða haga sér eins og fífl. Verzlunin blómgað- ist og dafnaði, og nú eigum við sex verzlanir. Ég tók að færa út kví- arnar á viðskiptasviðinu. Ég eign- aðist bílagistihús, nokkur veitinga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.