Úrval - 01.09.1973, Page 40

Úrval - 01.09.1973, Page 40
38 ÚRVAL um mál. Við gátum heyrt dauf óp annars innilokaðs fólks, sem kallaði á hjálp. Og það sem verst var, við fórum að finna nýja jarðskjálfta- kippi. Nú kallaði Jerry æstur: „É'g get séð ljósskímu núna. Ég ætla að reyna að komast út um útvegginn.“ „Gættu að þér Jerry. Elsku, gættu að þér. Hvernig er Díana?“ „Henni líður vel, kemur hérna á eftir mér og grefur dálítið líka.“ Hvorugt okkar gerði sér í raun- inni grein fyrir því, að um leið og Jerry nálgaðist útvegginn, varð erf- iðara fyrir mig að heyra til hans. Ég hafði aðeins óljósa hugmynd um það, sem gerðist. Ég fékk það á heilann, að eitthvað hefði komið fyrir þau, og það þjáði mig mjög. Ef Jerry og Díana voru dáin, þá vildi ég ekki lifa heldur. Næstu klukkustundir voru senni- lega þær verstu, sem ég hef reynt. Ég lá fangelsuð í myrkri gröf og hugsaði, að bæði Jerry og Díana væru dáin og að ekki mundi líða á löngu, þar til ég sameinaðist þeim. Það var þá, sem ég bað. „Góði Guð, ef Jerry og Díana eru dáin, láttu mig þá deyja líka, en ef þau eru á lífi og örugg, lofaðu mér þá að lifa. Ég vil lifa og vil að þau lifi líka. Heyrðu bæn mína, Guð, gerðu það, láttu þau lifa, láttu okk- ur öll lifa.“ Fyrst merkið, sem ég varð vör við um, að ég væri ekki gleymd og hefði verið skilin eftir til að deyja, var dauf rödd, sem heyrðist kalla nafnið mitt með miklum frönskum hreimi. Ég hafði legið i móki, sem stund- Jerry og ég eftir björgunina. um var nær meðvitundarleysi en svefni. Viljinn til að lifa var næst- um horfinn, en ég barðist við að svara. „Ég er hérna niðri.“ „Við erum að grafa niður til þín. Haltu áfram að kalla, svo að við vitum, hvert við eigum að stefna!" Mig langaði ekki mikið til að hrópa. Ég hafði verið grafin undir þessu heljarfargi heila ævi. Ég var í döpru skapi. Eftir nokkra stund heyrði ég há- vaðann frá hökum og skóflum, en hann var samt ennþá langt í burtu. Sama röddin kallaði. „Sue, Sue, ertu þarna ennþá?,, Þetta var heimskuleg spurning og ég fann til reiði. „Auðvitað er ég það.“ „Jæja, haltu áfram að kalla, svo að við getum grafið í rétta átt.“ „Ég er að kalla!“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.