Úrval - 01.09.1973, Blaðsíða 67
FJÖLSKYLDA f FULLUM GANGI
65
hluti 1 lífinu, sem helzt er óskað eft-
ir.
Slíkar fjölskyldur, álítur Hill, eru
á styrkum grunni skipulags og
hátta, með örugg traust sambönd
milli konu og manns og milli for-
eldra og barna og þær eru ákveðnar
í bjargráðaleit og afkomu.
Niðurstöður Hills prófessors voru
í heild gefnar út í 400 blaðsíðna
riti handa öðrum sálfræðingum og
námsmönnum í fjölskyldufræðum.
En í stuttum útdrætti hefur hann
tekið saman hið helzta sem að gagni
mætti koma til íhugunar og eftir-
breytni fyrir almenning og eink-
um fyrir þá, sem eru á biðilsbuxun-
um.
FLÝTTU ÞÉ'R EKKI
f HJÓNABANDIÐ
Þeir sem kvæntust 25 ára eða
yngri höfðu greinilega lakari af-
komu en þeir, sem voru milli 25 og
29 ára við stofnun heimilis.
Þeir eldri voru líka snjallari í
uppbyggingu heimila og til að fá
aðgengilegri störf.
Ein mikilsverð ástæða: Yfir höf-
uð að tala voru þeir betur mennt-
aðir, sem gerði þá hæfa til ábyrgð-
armeiri og betur launaðra embætta.
TAKMARKIÐ BARNAFJÖLDA
Næstum engin hamingjusöm hjón
í yngstu kynslóð áttu meira en tvö
börn.
Það var ekki einasta, að börnin
voru færri en í fyrri tíma kynslóð-
um, heldur einnig á miklu styttra
tímabili.
Hill telur þetta atriði hvíla á því,
sem hann nefnir „social placement“,
verkefnið „að lenda á réttri hillu“.
í gamla daga réði hending að
miklu hvar börn fengu starfa. Nú á
dögum er að mestu byggt á uppeldi,
sem foreldrar veita með efnum sín-
um og aurum. Því færri sem börn
eru í sömu fjölskyldu, því fremur
hefur efnahagur foreldranna áhrif
á framtíðarstarf þeirra.
VERTU VIÐBÚINN
HINU ÓVÆNTA
Tveir þriðju af öllum þeim breyt-
ingum, sem allar þessar fjölskyldur
áttu þátt í — flutningum, atvinnu,
kaupum, sparnaði — voru ekki á-
kveðnir þrem mánuðum fyrir fram.
Þær fjölskyldur, sem tóku breyt-
ingum á auðveldastan hátt, voru
þær, sem höfðu komið sér upp nokk-
urs konar fjölskyldulögum — á-
kveðnum fyrirmælum, sem ávallt
skyldi tekið tillit til.
Slík fyrirmæli gátu verið á þessa
leið: „Kaupið alltaf hið bezta, sem
er á boðstólum“. „Greiðið út í hönd,
varizt ábyrgðir". „Kaupið einn góð-
an útbúnað fyrir hverja árstíð".
Flest slík lög voru fyllilega ákveðin
og haldin og öllum augljós, en hver
og hvernig sem þau voru, fylgdi
hamingjusöm fjölskylda þeim dyggi.
lega.
„Lífið breytist hratt hjá ungum
hjónum", segir Hill, „og þau geta
ekki alltaf greint fyrirfram, hvað
verða vill í áætlunum þeirra“.
Þeim er því enn meira virði að
fylgja ákveðnum reglum en þeim
eldri.
Nýgift hjón hefja sjaldan heimilis-
líf eftir settum reglum. En góðar