Úrval - 01.09.1973, Side 51

Úrval - 01.09.1973, Side 51
GETNAÐARVARNIR FYRIR HUNDA OG KETTI 49 vörnum til handa dýrum, og getnað er hægt að hindra á auðveldan hátt, t. d. með því að gera dýrin ófrjó með vönun eða geldingu. Þegar tík eða læða er vönuð, þá deyfir dýralæknir skepnuna. Síðan ristir hann lítinn skurð og vanar skepnuna á mjög stuttum tíma. Kvendýrið verður jafngott eftir að- gerðina að 48 stundum liðnum. Þeg- ar um er að ræða unga högna eða hunda, eru þeir geltir (eistun fjar- lægð) og eru þeir einnig deyfðir meðan á aðgerð stendur, en hins vegar er þessi aðgerð einfaldari en vönun kvendýrs og tekur ekki nema um tíu mínútur. Gæludýr sem þannig hefur verið breytt, er ekki lengur fært um að leggja neitt af mörkum til fjölgun- arinnar. Dýrið hefur minni löngun eða þörf fyrir að flækjast af heim- ili sínu. Dýrið verður sælla með sig, vingjarnlegra og öll grimmd hverfur. Vanaðar læður og tíkur losna við allt katta- og hundastand, tíkur fara ekki framar á lóðarí, eins og eðli þeirra býður þeim annars að gera tvisvar á ári. Og eigandi tíkurinnar losnar þar með við heim- sóknir skapæstra hunda í flokkum. Það er algengur misskilningur, að gelt eða vönuð dýr verði fljótt af- mynduð af spiki og alveg sinnulaus. Dr. Robert Kirk, prófessor við Cornell‘s dýralæknaskólann í Bandaríkjunum segir, að gelt dýr sé geðgott og miklu heppilegra sem gæludýr. Hann telur að verið geti að slíkt gæludýr þyngist frá því sem áður var, en ástæða þess er ekki geldingin sjálf, heldur hitt, að van- að dýr nennir síður að ólmast út um hvippinn og hvappinn, verður værukærara. Um leið má því kenna eigandanum um spikið þar eð hann gleymir að draga úr fæðumagninu sem hann gefur dýrinu. Sumir halda fast við þá kreddu sína, að kvenkyns dýr verði að fá að ala afkvæmi a.m.k. einu sinni, því fái þær að gera það, verði þær heilsuhraustari og þroskaðri dýr. Það er ekkert líffræðilegt atriði sem styður þessa kenningu. Staðreyndin er hins vegar sú, að sé kvendýr vanað snemma á lífsskeiðinu, er það fullkomlega tryggt gegn krabba- meini í móðurlífi eða leggöngum. Og eftir því sem Dr. William Hardy, sem starfar við Sloane-Kett- ering stofnunina í New York, segir, þá dregur það mjög úr tíðni krabba- meins í brjósti katta, séu þeir van- aðir sem allra yngstir. Hvernig stendur á því að vönun er ekki algengari en nú er? Það má víst skella skuldinni jafnt á eigend- ur gæludýra, samtök dýralækna, verzlanir sem selja gæludýr og ýmsa aðra sem græða fé á því að ala og selja gæludýr. Mörgum eig- endum dýra er fullkomlega sama þótt þeir drepi hvolpa eða kett- linga, aðrir bera sig upp undan reikningum dýralækna, sem geta numið frá 15 til 50 dollara. Eigendur tína jafnan til þúsundir afsakana fyrir því að láta dýr sín ala af sér afkvæmi. Þeir segja t. d.: „Við finnum ævinlega góð heimili handa litlu krílunum". En samt merkir „gott heimili" aðeins sér- hvern þann, sem vill taka við hvolpi eða kettlingi sem eigandi tíkur eða læðu vill ekki.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.