Úrval - 01.09.1973, Page 54
52
hjónabandið á að haldast áfram sam-
kvæmt helgu loforði brúðkaups-
dagsins um ævilangar tryggðir og
samfylgd hjónanna.
Þrátt fyrir fullyrðingar harðsoð-
inna kvenfrelsishetja, kæra fæstar
konur sig um að varpa frá sér þeirri
heppilegustu lífsaðstöðu sem upp
hefur komið — hjónabandinu.
Óánægja í hjúskapnum stafar fyrst
og fremst af þeirri staðreynd, að
þeim verður stöðugt erfiðara um
vik að semja sig að annars flokks
aðstöðu og undirlægjuskap í sam-
félaginu.
Af því verður erfiðara en áður að
helga sig og semja sig að óskum og
fullnægju eiginmannsins einvörð-
ungu, erfiðara að sætta sig við ann-
ars flokks lífsstarf.
Hér er ekki um að ræða afnám
hjúskapar, heldur hitt að gera
hjónabandið frjálslegra. Og hér skal
hjónaband skilgreint sem ástarsam-
band, þar sem hvor aðili um sig
Itekur eins mikið tillit til ham-
ingju og þroska mótaðilans sem
síns eigin vaxtar og sinnar eigin
hamingju.
Hér skal leitast við að gera þess-
ari aðstöðu hjónanna hvors til ann-
ars örstutt skil í þrem meginatrið-
um, sem ég nefni Bræðrakerfið:
1. Gerðu áætlun.
Gerðu skrá yfir það, sem þú ósk-
ar öðru fremur. Við eigum öll
óskipulegar óskir. Örstutt skrá yf-
ir þær gerir auðveldara að átta sig
á hinu nauðsynlegasta og gefa ósk-
unum ákveðið takmark.
Hún Soffía gæti orðið samnefn-
ari fyrir margar konur.
ÚRVAL
Allt hennar líf var þrotlaust
amstur eftir kvörtunum hennar að
dæma.
„Mér finnst ég bókstaflega glöt-
uð frá því að ég vakna á morgn-
ana,“ sagði hún.
Krakkarnir ærslast. Smábarnið
argar. Ég skipti á því og gef því að
borða.
Maðurinn minn finnur ekkert
hreint til að fara í. Gunna finnur
ekki heimaverkefnin, sem lokið
skal fyrir skólatíma. Baddi þarf
peninga til skólastarfsins. Ég hníg
niður alveg uppgefin um leið og
þau loka dyrum og leggja af stað.
Ég bað Soffíu að gera skrá, óska-
lista í fimm atriðum.
Það leiddi í ljós:
1. Hún vildi gjöra börn sín ham-
ingjusöm og hæf til að velja og
hafna.
2. Eignast sömu ánægju með eig-
inmanni sínum, sem hún gat notið
áður en börnin fæddust.
3. Hafa meiri tíma handa sjálfri
sér — til lestrar, hvíldar, göngu-
ferða eða tómstunda.
4. Geta lifað í nánari snertingu
við umheiminn yfirleitt.
5. Efla persónuleika sinn.
Ég strikaði undir nr. 5. Ég hef
fundið að það er sameiginlegt at-
riði á óskalistum kvenna. Soffía var
móðir, húsfreyja og félagi í öku-
skóla. En hún fann, að hana skorti
persónuleika. Soffía er ein af þess-
um konum, — og þær eru ótelj-
andi, — sem kvenfrelsisskörung-
arnir gleyma eða sést yfir að
minnsta kosti.
Hún leit ekki á hjónaband sem
hindrun. Hjónaband var einmitt ósk