Úrval - 01.09.1973, Page 92
90
ÚRVAL
Þessi hindrun bráðrar þreytu,
bætir ekki einungis líðan meðan erf-
iðið stendur yfir, heldur safnast
einnig nokkurs konar öryggisbirgð-
ir af þrótti til hjálpar, þegar mest
þarf með.
Sérfræðingar eru varkárir í full-
yrðingum sínum gagnvart því,
hvort göngur lengi mannsævina.
Það eru ekki öruggar sannanir fyrir
því. En einu slá þeir föstu, daglegar
gönguferðir gera fólk unglegt í út-
liti og hreyfingum, þrátt fyrir háan
aldur. Einn helzti kostur við hressi-
legar gönguferðir er sá, að ekki
þarf að skrá þær á vissum tímum.
Auðveldast er að fella þær inn í
daglegar lífsvenjur og starfshætti.
Eigi maður fárra erinda að gegna
utan húss er nauðsynlegt að ganga
rösklega. Stuttar leiðir í búð eða á
vinnustað krefjast hins sama.
Gakktu jafnvel hressilega um gang-
inn í húsi þínu eða vinnustað.
Aldrei að lyppast áfram.
Örstutt ganga með fjaðurmögnuð-
um hreyfingum vegur upp margra
mínútna letiráf. Sé þetta haft í huga
er unnt að notfæra sér stuttar vega-
lengdir til mikils gagns og góðrar
æfingar daglega.
Og af því að gangan verður
venja þá má njóta hennar betur og
betur með stöðugri ástundun.
Sé þessa gætt skýrist hugsunin
og sjónin skerpist. Það er eins og
litið sé út um nýhreinsaða glugga.
Orkuforði líkamans eykst og safn-
ast.
Þetta er ekki svo lítill hagnaður
sem í þessu felst og allt innan seil-
ingar örstuttrar gönguferðar.
Marriott hótelin í Washingtonfylki hafa orðið einna fyrst til að
skilja sundur þá, sem reykja, og þá, sem ekki reykja, svo að bragð
er að. Sjötíu herbergi, eða um tíu af hundraði alls gistirýmisins í
hótelunum Crystal City, Twin Bridges og Key Bridge hafa verið
fengin þeim, sem ekki reykja. Gamall tóbaksþefur hefur verið burt-
hreinsaður úr herbergjunum, og einungis þernur og þjónar, sem ekki
reykja, mega sinna gestunum þar.
Fyrsta reynsla var góð af þessari nýjung. Meiri aðsókn var tiltölu-
lega að þessum „reyklausu“ herbergjum en hinum í gistihúsum þess-
um.
Þegar verið var að gera kvikmyndina „Morðið á Trotsky“, lék
franski leikarinn Alain Delon hinn taugaveiklaða morðingja. Hann
sveiflaði exi yfir höfði Richard Burtons. „Þú ættir að fara varlega
með þessa exi,“ sagði Burton, sem lék Trotsky. „Það er nóg af
frönskum leikurum til, en ef þú drepur mig, þá deyr sjötti hlutinn
af öllum þeim kvikmyndaleikurum frá Welsh, sem til eru í heim-
inum.“