Úrval - 01.09.1973, Page 110

Úrval - 01.09.1973, Page 110
108 ÚRVAL hagslega, en áliti sínu og virðingu má hann ekki glata. Þess vegna verður hann að greiða skuldir sín- ar að fullu.“ Hin erfiðu ár milli 1891 og 1894 ritaði Twain ferðagreinar fyrir blaðið „Sun“ í New York, ýmsar frásagnir og sögur, — og fjórar bækur. En augljóst var, að hann myndi eigi getað losað sig úr skuldunum með ritstörfum einum, svo hann greip til gamla úrræðisins, fyrir- lestranna. Með því að halda sig innan tak- marka Bandaríkjanna og Kanada mundi hann hafa komist yfir erfið- leikana. En nú var hann kominn fast að sextugu og var orðið ógeð- fellt að stíga í ræðustól. Því fékk hann þá hugmynd, að ferðalag vítt um heim mundi skapa sér efni í nýja ferðabók, sem fjallaði um fólk og staði, sem hann hefði aldrei rit- að um áður. Eftir eitt ár ætti hann að geta byrjað á bók, sem losaði hann úr öllum skuldum. í maí 1895 kom Clemens-fjöl- skyldan til New York frá Southam- ton, og hinn 14. júlí fóru þau hjón- in ásamt Clöru til Cleveland, fyrstu borgarinnar af hundrað, sem hann hugðist heimsækja. Þaðan héldu þau til Vancouver á austur- ströndinni, og síðan með skipi yfir Kyrrahaf. Heimsferðalagið var haf- ið. Ferð þessi heppnaðist með ágæt- um, og innan fárra ára höfðu allir lánadrottnar Clemens fengið sitt með fullum skilum. Til Englands komu þau 31. júlí 1896. Gefum nú Twain orðið. „Viku seinna, þegar þær Susy og Jean hefðu átt að koma frá Bandaríkjun- um, barst okkur í staðinn bréf. Þar stóð, að Susy væri eitthvað lasin, en ekkert alvarlegt. En við fyllt- umst óróa og tókum að senda sím- skeyti og biðja um nánari fréttir. Allan daginn kom ekkert svar, — og skipið átti að fara frá Southamp- ton næsta dag á hádegi. Clara og mamma hennar byrjuðu að pakka niður, svo allt yrði tilbúið, ef frétt- irnar reyndust slæmar. Loks kom símskeyti, sem sagði, að batinn mundi taka langan tíma en engin hætta væri á ferðum, batinn kæmi örugglega. Mér létti stórlega, en svo var eigi um konu mína. Þær mæðgur fóru undir eins um borð í gufuskipið og stefndu í vesturátt. Ég varð eftir. Þetta gerðist 15. ágúst 1896. Þrem dögum síðar, þegar þær mæðg ur voru komnar hálfa leið yfir haf- ið, stóð ég í setustofunni, þegar símskeyti var lagt í hönd mína. í því stóð: „Susy fékk friðinn í dag.“ Hún var þá 24 ára og fimm mánaða gömul. Hinn 23. ágúst voru móðir hennar og systir viðstaddar útför hennar, — stúlkunnar, sem verið hafði okkur svo mikils virði.“ SÍÐUSTU ÁRIN Sumarið 1902 var Mark Twain boðið til Missouri, en háskólinn þar hugðist veita honum doktorstign í heiðursskyni. Hann þáði boðið, og á leiðinni til Missouri kom hann við í St. Louis. Þar var honum boðið um borð í hafnarbát borgarinnar, sem einmitt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.