Úrval - 01.09.1973, Page 116

Úrval - 01.09.1973, Page 116
114 ÚRVAL og sérfræðingur í að halda athygli áhorfenda fanginni frá fyrstu til síðustu mínútu. Alfred Hitchcock er nú 73 ára gamall, og enn í fullu fjöri og alltaf jafn hugmyndaríkur. Á síðast liðinni hálfri öld hefur hann gert 52 kvikmyndir sem seldar hafa verið fyrir 200 milljónir doll- ara (hátt í 20 milljarða króna), að því er segir. Einnig hefur hann stjórnað 350 geysivinsælum sjón- varpsþáttum sem allir voru þrungn- ir morðum og óvissu. Þessir tveir þættir, morð og ó- vissa, að viðbættri smitandi kímni- gáfu og smásmugulegri nákvæmni í hverju einstöku atriði, hafa aflað Hitchcock þess orðspors, að hann sé einn örfárra starfandi kvikmynda- leikstjóra, sem brúað hefur kyn- slóðabil þöglu myndanna og' tal- myndanna. Þær myndir sem hann gerði á fyrstu árum ferils síns, eins og „The 39 Steps“, „The Secret Ag- ent“ og „The Lady Vanishes11 eru enn jafn spennandi og þær voru fyrir tæpum 40 árum. Með mynd- inni „North by Northwest" skóp hann forskrift hinnar vönduðu og sérviskulegu formúlu, sem allar myndir í James Bond-stíl hafa hlið- sjón af. Margir telja mynd hans „Psycho" bera höfuð yfir kvik- myndir sem framleiddar hafa verið, hvað spennu og óvissu snertir. Og síðasta mynd hans „Frenzy“ var af gagnrýnendum talin ein af 10 bestu myndum ársins 1972. Um það eru allir sammála, að Hitchcock er framúrskarandi fjöl- hæfur, og þó að hann hafi stjórnað öllu frá handriti til höfuðfata í myndum sínum, hefur hann næst- um einn síns liðs þróað hina sígildu leynilögreglukvikmynd frá þeirri einföldu spurningu: „Hver gerði það?“, sem svarað var á síðustu mínútu hverrar kvikmyndar, til myndarinnar, þar sem spennan grípur áhorfandann á fyrstu mín- útu og helst þar til á síðustu sek- úndu, bragðbættri með ósjálfráðum ópum og krydduð með hlátri. Það er ekkert sjálfsagt í hugmyndarík- um heimi Hitchcocks. Á hinum sakleysislegustu augnablikum mynd anna skýtur upp nýrri spennu, nýj- um brögðum. Vínflaska inniheldur leyndarmál kjarnorkusprengjunn- ar, ástkær ættingi reynist vera harðsvíraður morðingi, og þjóðar- minnismerki eins og Frelsisstyttan verður vettvangur næstum óbæri- legs spennings. Hitchcock er ekki aðeins stjórn- andi mynda sinna, heldur hefur hann leikið í mörgum þeirra. í einni af fyrstu myndum sínum, „The Lodger“ átti blaðamaður að sitja við skrifborð. Til að spara auka útgjöld við að leigja mann í það hlutverk sat Hitchcock þar sjálfur. f næstu myndum á eftir kom hann fram, þegar þörf var á manni í aukahlutverk. Gagnrýnend- ur fóru fljótlega að veita athygli auðþekkjanlegu útliti Hitchcocks. Það er ekki lengur í sparnaðar- skyni sem Hitchcock kemur fram í hópatriðum. Á síðari árum hefur athygli áhorfenda um of beinst að „Hitchcock-atriðinu" í myndunum. Því hefur „Hitchcock-atriðinu" í hverri mynd verið flýtt eins og kostur er, því þegar Hitchcock hef- ur einu sinni birst kemur hann ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.