Úrval - 01.09.1976, Blaðsíða 4
2
URVAL
Þegar við kvöddum son okkar, sem
var að fara í sumarbúðir minnti ég
hann á að skrifa okkur bráðlega.
Önnur móðir sem var þarna viðstödd
sagði: „Öruggasta leiðin til að fá
soninn til að skrifa heim úr sumar-
búðunum er að senda honum svo-
hljóðandi bréf: „Hérna eru 1000
krónur. Keyptu þér brjóstsykur,
súkkulaði og rjómaís fyrir þær eða
eyddu þeim eins og þig langar til.”
„Heldurðu að það komi honum til
að skrifa'1”
„Auðvitað,” svaraði hún. ,,Ef þú
gleymir að setja 1000 krónurnar í
umslagið.”
Ungur listmálari sem sérhæfði sig í
að mála óveðursmyndir af hafinu,
með þungbúnum himni og æðandi
öldum, hélt að lokum einkasýningu.
Vinur listamannsins skoðaði gaum-
gæfilega allar myndirnar. Þegar því
var lokið leitaði hann vin sinn uppi
og sagði:
, ,Þetta er ekki nógu gott. ’ ’
,,Við hvað áttu eiginlega?” spurði
listamaðurinn.
, Jæja, jæja,” sagði vinurinn, ,,þú
varst sannarlega heppinn með veðr-
ið.”
Ferðamaður nokkur sem var að
spjalia við sólbakaðan Mexíkóbúa um
veðrið í Mexíkó spurði meðal annars:
„Rignir aldrei hérna í Mexíkó?”
Sá innfæddi svaraði: ,,Þú þekkir
söguna af Örkinni hans Nóa og
hvernig það rigndi í fjörutíu daga
og fjörutíu nætur? ’ ’
,Já, auðvitað,” svaraði ferðamað-
urinn.
, Jæja, þegarþað var, var úrkoman
hérna í Mexíkó aðeins um tveir
sentimetrar. ’ ’
Samtal milli sálfræðings og sjúkl-
ings:
,,Nú, hvað get ég gert fyrir þig?”
„Læknir, þú verður að hjálpa mér.
Ég er tölvufræðingur og ég er ást-
fanginn af tölvunni minni. Ég held
samt að ég geti ekki gifst henni.”
,,Ég er fegin að þú sérð það.”
, Já, það gæti aldrei gengið — hún
er rauðsokka.”
Maður nokkur við annan mann:
„Þegar ég var strákur var ég svo vit-
laus að ég héh að ,,Hálfvirði" og
,,Utsala" væru ákveðin vörumerki.”