Úrval - 01.09.1976, Blaðsíða 74
72
URVAL
stríða og þótt það heldur hvimleitt.
Þegar hann er sýndur læknum, er
hann venjulega eins og hvxtar kláða-
blöðrur milli tánna. Venjulega er
gefið við þessu lyf, sem er undir
hælinn lagt að eyði fótasveppnum að
neinu gagni. Nú hefur A.M. Klig-
man við Pennsylvaniuháskóla fundið
betri lausn. Á fyrsta stigi er fóta-
sveppur eins og þurrar, hreistraðar
skellur á fótunum, og við þeim dugir
hið venjulega lyf, sem drepur svepp-
bakteríuna. En þegar fótrakinn fer að
hafa áhrif á skellurnar, fær bakterían
virkilega að njóta sín og þá myndast
þessar hvítu kláðablöðrur, sem em
hið raunverulega einkenni fótasvepps.
Þær em því fyrst og fremst afleiðing
af raka og bleytu.
Kligman og félagar hans reyndu
margháttuð lyf til þess að sigrast
á bæði sveppunum og fótrakanum,
og komust að því, að 30% upp-
lausn af alúminíumklóríði væri áhrifa
ríkust. Með því að maka henni á
fæturna tvisvar á dag með bómull-
arpensli hvarf kláðinn á 48—72
tímum, og innan viku var greinilegt
að sveppirnir vom á algeru undan-
haldi.
Úr Family Circle
ÞRiÐjA STÆRSTA DÁNAROR-
SÖKIN.
Niðurstöður þær, sem er að finna í
nýútkominni skýrslu bandarísku
sykursýkisnefndarinnar hafa verið
kallaðar ,.skelfilegar”. Þær draga
upp mynd af ólæknanlegum og
banvænum sjúkdómi, sem tíu mill-
jón manns í Bandaríkjunum þjást af,
og talið er að tala fórnarlambanna
tvöfaldist á hverjum fimmtán ámm.
Frá 1965 til 1973 fjölgaði sykur-
sýkissjúklingum þar um ríflega 50%.
Árið 1974 fundust 600 þúsund sjúkl-
ingar í viðbót, og ríðni sjúkdóms-
ins virðist aukast um 6% á ári.
,,Þetta þýðir, að líkurnar til þess að
nýfæddur einstaklingur fái sykursýki,
þegar fram líða tímar, em meiri en
ein á móti fimm, nema einhver leið
finnist til að fyrirbyggja sjúk-
dóminn” segir í skýrslunni. 38
þúsund manns létust beinlínis af
völdum sykursýki í Bandaríkjunum
árið 1974, og sterkar líkur em til þess
að fylgikvillar sjúkdómsins hafi vald-
ið dauða 300 þúsund manns til við-
bótar. Þetta þýðir, að sykursýki er
þriðja mesta dánarorsökin í Banda-
ríkjunum um þessar mundir.
Nefndin hvetur til þess, að stjórnin
þrefaldi framlag sitt til þess að finna
leið til varnar sjúkdómnum.
Úr The National Observer.
ÁFENGI OG KYNLÍF
Langvarandi áfengisneysla hefur
oft áhrif á kynlíf karla. Að hluta til
verður þetta vegna þess að áfengið
hefur þau áhrif á lifrina, að hún eyðir
karihormóninu testosterone, segir í
niðurstöðu rannsóknar, sem nýlega
var sagt frá í tímaritinu Science.
Hópur karla tók að sér sem sjálf-
boðaliðar að drekka jafngildi hálf-