Úrval - 01.09.1976, Blaðsíða 122
120
URVAL
muntu gera þér betri grein fyrir því,
hvað þú ert í rauninni að gera.
Þú skalt alltaf leggja fullkomlega
á borð fyrir sjálfa þig. Leggðu alltaf
hníf, gaffal og skeið hjá diskinum
þínum, hversu lítill sem aukabitinn
'er. _
Utilokaðu allt, sem dregur athygli
þína firá matnum og átinu. Þú mátt
ekki vinna, hlusta á útvarp, horfa á
sjónvarp, reykja eða lesa, á meðan þú
borðar. Þú mátt ekki leyfa þér neina
truflun, sem dregur athygli þína frá
matnum og átinu, nema þá að tala
við aðra þá, sem við borðið kunna að
sitja.
Drekktu glas af vatni á undan
hverri máltíð. Drekktu eingöngu
vatn á undan hverri máltíð, en ekki
te eða kaffi, fullt glas af vatni. Þetta
mun koma í veg fyrir, að þú gleypir
í þig matinn. Þegar þú borðar, líða
yfirleitt um 20 mínútur þangað til
maturinn hefur áhrif á saðningar-
kennd þína. Það er einkennandi
fyrir of þungt fólk, að það gleypir
í sig mafinn og lýkur honum öllum
áður, en þessar 20 mínútur eru
liðnar, eða áður en það hefur
möguleika á að finna til saðningar-
kenndar. Efþú drekkur vatn á undan
máltíðinni, dregur slíkt úr hungri
þínu.
Þegar þú hefur náð góðu valdi á
þessum reglum, ertu komin hálfa
ieið að marki þessarar meðhöndl-
unar. Nú ættirðu bráðlega að fara að
léttast, ef þú ert ekki þegar byrjuð á
því. Þú ættir einnig að hafa gert þér
grein fyrir því, að þú býrð yfir tals-
verðri sjálfstjórn, og hefur þannig
sannað, að þú hefur það, sem með
þarf til þess að ná markinu og ljúka
meðhöndluninni með góðum árangri
5. LÆRÐU AÐ BORÐA HÆGT.
Leggðu gaffalinn eða skeiðina frá
þér á eftir hverjum munnbita, og
taktu þau svo upp aftur, þegar
munnur þinn er orðinn tómur. Þegar
þú borðar án siíkra áhalda, leggðu
þá brauðsneiðina, ávöxtinn eða það
annað, sem þú ert að borða, frá þér
á eftir hverjum munnbita.
Því er eins farið með þetta og
vatnsdrykkjuna, að þetta mun gefa
maga þtnum meiri tíma til þess að lát
í ljósi viðbrögð sín. Þetta hægara
át ásamt þeirri staðreynd, að þú
gerir þér betur grein fyrir átinu og
matnum en áður, mun seðja þig,
áður en þú getur lokið þínum venju-
lega skammti. Þú ættir tafarlaust að
sjá árangurinn af þessari viðleitni
þinni og nýjum venjum, sem verður
minni matarneysla og minnkandi
líkamsþyngd.
6. SKILDU EITTHVAÐ EFTIR Á
DISKINUM ÞlNUM.
Þú skalt alltaf skilja eitthvað eftir
á diskinum þínum (en ekki þegar um
aukabita er að ræða), jafnvel þótt
aðeins sé um að ræða einn kjötbita,
einn kartöflubita eða eina snittubaun.
Ef þú átt við hinar dæmigerðu
röngu átvenjur að stríða, hefur þér
líklega verið kennt að hreinsa vel af