Úrval - 01.09.1976, Blaðsíða 24
22
URVAL
þannig í sneringu við tékka á hljóm-
leikum, því að borg Dvoráks og
Smetana er geysileg tónlistarborg,
þar sem menn dá tónlist af mikilli
ástríðu. Þar eru nokkrar sinfóníu-
hljómsveitir, þrjár óperuhallir og
fleiri hljómleikahallir en unnt er að
telja upp í fljótu bragði. Sagt er, að
sérhver íbúi Prag leiki á eitthvert
hljóðfæri. Á vortónlistarháríðinni
enduróma kirkjur, torg og garðar af
tónum strengjakvartetta og lítilla og
stórra hljómsveita. Fyrir þá gesti, sem
skilja ekki málið, er um fleiri
skemmtanir að ræða, svo sem þá að
horfa á stúlkurnar í Prag, sem eru
alveg stórkostlega laglegar. Einnig
mætti telja hin dásamlegu brúðu-
leikhús og „Töfraluktina” (Magic
Lantern), alveg sérstaka skemmtun,
þar sem blandað er saman lifandi
leikurum, söngvurum og dönsurum
annars vegar og kvikmyndum hins
vegar.
Þegar ég steig út úr leigubílnum
á flugvellinum morguninn er ég
yfírgaf Prag, sagði leigubílstjórinn
við mig, og það var sem rödd hans
lýsti bæði löngun og von: „Gleymdu
okkur ekki, eftir að þú verður
kominn heim til Ameríku.” Það eru
litlar líkur á því, að ég muni nokkurn
ríma geraþað.
Maðurnokkurféllfyrirauglýsinguum „Ævintýraferð út í bláinn” og
borgaði 500 dollarana sína fyrirfram. Svo kom hann niður á bryggju á
tilsettum tíma. Allt í einu kom risavaxinn maður aðvtfandi, þreif
manninn í fangið, bar hann um borð og undir þiljur, þar sem hann
slengdi honum niðru á bekk, hlekkjaði hann þar fastan og rak galeiðuár
uppí hendurnar á honum. í tvær langar vikur sat svo maðurinn þarna og
rériítaktviðþungan trumbuslátt, ogvið hliðinaáhonum varannar, sem
líka hafði látið blekkjast.
Þegaraftur kom til hafnar, voru ræðararnir leystir og ferðinni var lokið.
Þá sneri maðurinn sér að þóftufélaga sínum og sagði: „Ég hef aldrei farið í
svona ferð fyrr — ætli maðureigi að borga trumbuslagaranum þjórfé?”
J. G.
FLÖÐ- OG FJÖRUHREYFINGAR Á ÞURRU LANDI.
Jarðeðlisfræðingar hafafundið mælanlegar „flóð- ogfíöruhreyfíngar’ ’
í Kákasus, en þar er eitt yngsta fíallakerfí jarðarinnar. Aðdráttarafl sólar
og tungls orsaka hreyfíngarnar og nema þær nokkrum þúsundustu
hlutum og jafnvel hundruðustu hlutum úr millimetra árlega.
Hreyfingarnar hafa sérstaklega verið rannsakaðar og skráðar í sambandi
við byggingu 300 metra hárrar stíflu við Ingurivatnsorkurverið í Grúsíu
vestanverðri.