Úrval - 01.09.1976, Side 11
9
HVAÐ VARÐ UM DÝRIN?
1600 árum f. Kr. hafa 36 spendýra-
tegundir og 94 fuglategundir þurrk-
ast algerlega út. Þar er um að ræða
1% af öllum spendýra- og fuglateg-
undum. Og frá því um síðustu alda-
mót hefur um ein dýrategund dáið út
á ári hverju að jafnaðh Og vegna
hinnar gífurlegu fólksfjölgunar
núna, sem leiðir til þess, að sífellt
fleiri menn keppa um lífsrúm, hlýtur
þessi þróun að magnast og tiltölulega
fleiri dýrategundir munu nú týna
tölunni, þannig að þessi þróun verði
hraðari en áður.
Auðvitað munu sumar dýrateg-
undir deyja út af eðlilegum orsökum,
hvort sem maðurinn er þar í nábýli
eða ekki. Á hinn bóginn höfum við
ekki efni á að missa viljandi fleiri
dýrategundir, jafnvel ekki eina dýra-
tegund í viðbót. Fyrir óralöngu voru
líkur á því, að dæi einhver dýrateg-
und út, kæmi önnur í hennar stað,
sem var alveg eins athyglisverð eða
jafnvel enn athyglisverðari. En nú
koma ekki fram nýjar dýrategundir í
stað þeirra, sem hverfa. Það er vel
hugsanlegt, að það muni ekki koma
fram neinar athyglisverðar nýjar teg-
undir af stórum dýrum framar.
Þar af leiðandi er hvert það dýr,
sem gengur um jörðina, syndir um
höf hennar, ár og vötn eða flýgur um
loftið yfir henni, svo óendanlega
dýrmætt og dásamlegt, að það
jafngildir stjörnunum á festingunni,
úthöfum jarðarinnar og mannshug-
anum sjálfum. Dýrin mynda órofa
þátt í vef Móður Náttúru, og fari svo,
að við flýtum fyrir því, að jafnvel
aðeins ein dýrategund hverfi alger-
lega, minnkum við um leið veröld
okkar og drögum úr mikilvægi stöðu
okkar mannanna í henni.
★
TÖNVERK EFTIR SJOSTAKOVITSJ FUNDIÐ.
Árið 1928 samdi hið 22ja ára gamla tónskáld, Dimitrí Sjostakovitsj,
tónlist við þögla kvikmynd, er hét Hin nýja Babílon. Það heyrði til
undantekninga, að samin væri sérstök tónlist við þöglar kvikmyndir á
þeim tíma, og tónlist þessi var aðeins leikin nokkmm sinnum, því að
tónlistarmönnumkvikmyndahússinsfannst, að því er Sjostakovitsj hefur
sjálfur sagt, að hún væri allt of þung. Þeir voru vanir að leika venjulega
stofutónlist á sýningum eftir því sem henta þótti hverju sinni.
Sjostakovitsj hélt sjálfur, að nóturnar að þessu verki hefðu glatast, en
nýlega fundust þær í geymslu Leninbókasafnsins. Tónlistin verður nú
gefin út á plötu hjá hljómplötufyrirtækinu Melodia, leikin af
sinfóníuhljómsveit undir stjórn Gennadí Rosjdestevenskí.