Úrval - 01.09.1976, Síða 75
73
potts af viskíi á dag í fjórar vikur
samfleytt. í ljós kom, að áfengið kom
lifrinni til þess að framleiða allt upp
í fimm sinnum meira en eðlilegt
getur talist af hvata þeim, sem eyðir
testosteroninu. A hinn bóginn jókst
framleiðsla hormónsins ekkert. Em-
anuel Rubin, rannsóknarlíeknir á Mt.
Sinai sjúkrahúsinu, hefur þetta að
segja um niðurstöðuna:
,,Það, sem við fundum með
þessari rannsókn, leggur mikið af
mörkum til þess að skýra kynlífs-
vandamál áfengissjúklinga. Hver sá,
sem drekkur jafnt og þétt getur átt
þetta yfir höfði sér. Þetta em bein
áhrif áfengis í hvaða formi sem er —
brenndra drykkja, léttra vína og
bjórs. Það er áfengismagnið eitt, sem
hefur eitthvað að segja.
HAGUR KVENNA MEÐ BRJÓST-
KRABBA VÆNKAST
Nærri helmingur kvenna, sem
gangast undir skurðaðgerð vegna
brjóstakrabba, deyr innan fimm ára
frá uppskurðinum. En svo er að sjá,
sem hagur þessara sjúklinga muni
vænkast verulega upp úr þessu.
ítalskir læknar hafa tilkynnt nýja
lyfjameðferð eftir uppskurð, sem
getur geflð þessum konum fimm
sinnum meiri líkur til að læknast að
fullu en nú er almennt.
Það voru iæknar á Istituto Nazion-
ale Tumore (ítölsku krabbameins-
stofnunni) í Mílanó, sem fundu þessa
aðferð. Þeir völdu þrjú lyf —
cyclophosphamide, methotrexate og
5—fluorouracil — sem öll eru kunn
að því að hafa áhrif á frumuvöxt,
sérstaklega krabbameinsfrumur með
sinni öru skiptingu. En þessi lyf
reyndust áhrifameiri þegar þau eru
gefin saman heldur en hvert út af
fyrir sig.
207 konur, sem höfðu undirgeng-
ist meiriháttar brjóstaskurði og haft
krabbavöxt í einum sogæðakirtli eða
jafnvel fleirum, vom látnar taka þessi
lyf reglulega að loknum uppskurði.
Árangurinn var stórkostlegur. Tveim
árum og þrem mánuðum síðar urðu
merki um krabbamein aðeins fundin
hjá 5,3% þessara kvenna. Jafnhliða
var 179 kvenna hópi ekki gefin þessi
lyfjameðferð, en þar reyndust 24%
kvenna með krabba jafn löngum
tíma eftir uppskurðinn.
Talið er líklegt, að þetta verði til
þess að sambærilegum sjúklingum
verði í vaxandi mæli veitt þessi lyfja-
meðferð fremur en geislun, sem fer
mjög illa með líkamann. Lyfjameð-
ferðin hefur hins vegar ekki teljandi
aukaverkanir.
Endursagt úr Time.
Sálin ætti sér ekki regnboga ef augun ættu engin tár.
J. V.