Úrval - 01.03.1982, Page 3
3. hefti
41. ár
Urval
i
Mars
1982
Undanfarið hefur verið fjörugt í þjóðlífínu og nóg að rífast um. Ráðherrar
þjóðarinnar og þingmenn hafa skemmt henni drjúgum með alls konar
uppákomum: Helguvík, Blönduvirkjun, flugstöð á Keflavíkurflugvelli,
samruna íscargós við Arnarflug og fleira í þeim dúr.
Fleira hefur verið til að hrista upp í vetrardrunganum. Deilur um leyfí til
leigubílaaksturs í höfuðborginni, þar sem sumir segja að engin leyfí séu fyrir
hendi og aðrir segja víst. Sömuleiðis hafa úfar risið um hverjir megi keyra rútur
um Austurland og meira að segja hve gamlir þeir fólksflutningabílar séu sem
þar troða vegina.
Og mitt í þessu öllu hillir undir að Smyrill fari að heimsækja Seyðisfjörð eitt
sumarið enn. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um ágæti þeirrar samgönguleiðar,
eða réttara sagt því eftirlitsleysi sem þar ríkir um hvers konar ferðalanga rekur
þar á fjörur okkar. Við sem um vegina förum á sumrin höfum séð erlenda
fólksflutningabíla að sligast undan flutningi og fólki, og hávær orðrómur er
um að þeir sem þannig komi hingað hafí með sér allt sem til lífsins þarf, svo að
þeir geri hér ekkert nema hafa afnot af vegum og landi án þess að nokkuð
komi fyrir. Skemmst er að minnast Fransmannanna sem lýstu því yfír í blaða-
viðtali í fyrra að þeir hefðu haft með sér rauðvín í tunnutali — en þeir voru
raunar sneyptir fyrir af því þeir voru svo vitlausir að segja frá þessu. Aðrir hafa
með sér eldsneyti á farartæki sín svo endist til aksturs hringinn og vel það. Enn
annar svartur blettur á þessum ferðamannainnflutningi er stuldur þeirra á
steinum og öðrum náttúrufyrirbrigðum sem sagður er stundaður í stórum stíl.
Þetta þarf að taka til rækilegrar athugunar, ekki síður en þau stórmál sem
nefnd voru í upphafí þessara orða. Okkur á að vera sárt um landið okkar og
umgengni um það og við eigum líka að nýta þá fjáröflunarleið sem felst í dvöl
ferðamanna á landinu okkar. Þá eigum við ekki alveg eins mikið undir fisk-
veiðum, sem reknar eru með halla, ef marka má barlóm þeirra sem þar halda
um stjórnvölinn og vinnslustöðvarnar.
Ritstjóri.
Kápumyndin:
Reykjavíkursvæðið hefur ekki haft mikið af snjó að segja í vetur. En þegar
hann kemur gerir hann landið hreint og bjart. Myndin er tekin við Elliðavatn.