Úrval - 01.03.1982, Blaðsíða 26
24
ÚRVAL
„Ncðar,” sagði hann hressilega í tal-
stöðina. „Neðar, neðar......” Þegar
þyrlan var komin í 15 metra fjarlægð
frá vélinni sagði hann snöggt:
„Kyrr!”
Jomini renndi sér út um leið og
merkið var gefið. Rúfenacht ýtti á
hnappinn á vindunni, sem lét línuna
renna út, og Jomini seig hægt niður
rétt aftan við stél vélarinnar. Hann
lenti í hringiðunni sem myndaðist
viS streymið frá vélinni og snerist
stjórnlaust á króknum sem hann hékk
á.
„Neðar!” skipaði Rúfenacht, og
Alouette-þyrlan seig enn nær flug-
vélinni og Jomini var þar með
kominn niður fyrir mesta loftstreymið
frá hreyflunum. Flugvélarnar tvær
flugu saman eins og væri þeim
stjórnað af einni hendi — hverri dýfu
og hækkun var fylgt nákvæmlega
eftir.
Talið upp að þremur
Jomini fann að hann kom við
axlirnar á Roux með fótunum. Hann
rétti út höndina og gaf vindu-
stjóranum merki um að láta sig ekki
síga neðar. Svo ýtti hann sér frá fall-
hlífarlínunum til þess að geta séð
niður til Roux sem starði á hann á
móti. Orð voru óþörf. Þessu næst lyfti
maðurinn, sem hékk neðan í vindu-
króknum, upp hnífnum. Roux
kinkaði kolli til merkis um að hann
skildi hvað var í þann veginn að
gerast. Jomini benti honum á
öryggisfallhlífma. Roux kinkaði aftur
kolli — hann vissi að þrjár sekúndur
urðu að líða áður en hann mætti
kippa í taugina sem losaði fallhlífina
svo hann væri örugglega laus við
vélina. Allt hafði verið tekið með í
reikninginn.
Jomini tók utan um 24 fallhlífar-
línurnar með vinstri hendinni og
byrjaði að skera. Roux fylgdist náið
með hverri hreyfingu. Allt í einu
þöndust augu hans út og hann féll.
Jomini tók að telja sekúndurnar þrjár
í huganum: eitt þusund og einn, eitt
þúsund og tveir, eitt þúsund og þrír.
Og svo POPP! Á réttu augnabliki
sprakk hlífin út eins og blóm og sveif
hægt til jarðar.
Portier kallaði: „Fallhlífin hefur
opnast!” og fagnaðarópin kváðu við.
Flugmaðurinn vissi að Roux var laus
þegar hann fann flugvélina lyftast
upp og léttan titring fara um hana.
Hann sneri við og hélt beint að flug-
vellinum og lenti þegar aðeins var
eftir eldsneyti til 15 mínútna flugs.
Roux lenti snilldarvel í
kartöflugarði um það bil 5 kílómetra
frá flugvellinum — 90 mínútum eftir
að hann hafði stokkið út úr Pilatus-
vélinni. Þyrlan fylgdist með honum
og hann klifraði um borð og bar með
sér samanbrotna fallhlífina.
Rúfenacht brosti breitt og þrýsti
hönd hans.
Roux hringdi heim til sín eftir að
hafa verið skamma stund á sjúkrahúsi
þar sem hann var rannsakaður vegna
kuldans og áfallsins sem hann hafði
fengið. Faðir hans svaraði í símann: