Úrval - 01.03.1982, Síða 46

Úrval - 01.03.1982, Síða 46
44 ÚRVAL búnir að samþykkja að Matt Hale, sem var kominn ári lengra í skóla en ég og klifraði oft með mér, skyldi koma með okkur sem þriðji maður. Sem fjórða mann vorum við að hugsa um að hafa Ed Bernd sem einnig var á öðru ári í háskólanum en hafði ekki stundað fjallaklifur nema í rúmt ár. Aldrei hef ég verið jafnupptekinn af nokkru verkefni. Hugurinn var allur í Alaska-fjöllunum. Þó gerðist það einu sinni þetta vor að ég losnaði augnablik undan þessum álögum, nógu lengi til þess að heyra rödd í hjarta mínu segja: Þú veist vel að þetta er ferð sem gæti dtt eftir að kosta þig lífið, Dave. Ég hinkraði við og gerði upp hug minn og samviskan svaraði: Þetta er sannarlegaþess virði. Eina helgi í mars vorum við Matt með hóp fólks í xsklifri á Mount Washington í New Hampshire. Tveir þeir reyndustu í ferðinni voru Craig Merrihue, sem var við framhaldsnám í háskólanum og hafði klifið í Andes- fjöllum og Karakoram, og Dan Doody, hæglátur, hugsandi kvik- myndagerðarmaður sem nýlega hafði tekið þátt í bandarísku Everest- ferðinni. Sandy, kona Craigs, var einnig með í ferðinni. Matt og ég fórum á undan, sinn með hvora línuna og á henni hóp byrjenda sem nú héldu upp Odells Gully og voru í æfíngakennslu. Um hádegisbilið heyrðum við kallað neðan úr gljúfrinu. „Einhver er að kalla á hjálp,” hrópaði ég til Matts. Ég renndi mér niður öryggislínuna og hljóp niður í gljúfrið. Maðurinn, sem ég mætti, hafði séð eitthvað sem líktist „fatahrúgu” renna fram hjá sér. Hann vissi að það voru manns- líkamar sem hann hafði séð og hann sá hvar þeir höfðu runnið og henst niður ailt frá Pinnacle Gully. Doody og Merrihue höfðu verið að klifra þar uppi. Eg kom fyrstur að mönnunum. Dan var verr farinn, stór hluti af höfðinu rifínn í burtu. Líkami hans var enn volgur en ég var viss um að hann væri látinn. Mér fannst ég finna æðaslátt á úlnlið Craigs svo ég reyndi að stöðva blæðingarnar og hóf munn við munn aðferðina. Matt kom fljót- lega og fór að fást við Dan og svo komu hinir og reyndu að hjálpa til. Ég vissi eftir fímm mínútur að mennirnir væru báðir svo illa farnir að enginn gæti bjargað þeim. Blóð- missirinn var allt of mikill. I eitt skiptið varð mér litið upp og sá þá Sandy Merrihue, konu Craigs, þar sem einn úr hópnum var að segja henni hvernig komið væri. Ég sé enn fyrir mér andlit hennar þegar hún heyrði hvað gerst hafði og ég man að mér varð ljóst að þetta var harmur sem ég hafði ekki áður kynnst. Næstu vikur á eftir fóru fram minningarathafnir og mikið var rætt um hvað komið hefði fyrir og orsakað slysið. Laus ísskrúfa hafði fundist á línunni milli Dan og Craig. Ég var þó staðráðinn í því að láta þetta slys ekki koma í veg fyrir að ég klifi Huntington eins og ákveðið hafði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.