Úrval - 01.03.1982, Blaðsíða 67
TILFINNINGALÍF OG HEILSA
65
sjúkrahúsinu í London styður þessa
uppgötvun. Læknar þar ræddu auk
þess við hundrað og sextíu konur sem
komu til að láta taka sýni úr brjóstum
og tóku sérstaklega eftir þeim sem
virtust rólegar yfir þessari ugg-
vekjandi rannsókn. Þegar niðurstöður
voru bornar saman reyndust töluvert
fleiri af þeim rólegu vera með krabba-
mein. Flestar konurnar sem létu
áhyggjur sínar óhikað í ljós höfðu
góðkynjaða kvilla í brjóstum.
Frá því að King’s College rann-
sóknin var gerð hefúr þessari algjöru
afneitun margra sjúklinga með ýmsa
sjúkdóma verið gefmn nánari
gaumur. Á yfirborðinu er þannig
fólk vingjarnlegt og kvartar hvorki né
kveinar en það neitar að horfast í
augu við áföll lífsins því það óttast að
það sé ekki fært um að takast á við
þau. En það er mikilvægt að læra að
lifa með tilfínningar sínar. Það skapar
vandræði að afneita tilvist þeirra.
Vissa um að maður ráði sjálfur
örlögum sínum er nauðsynleg
forsenda góðrar líkamlegrar og
andlegrar heilsu. Þegar mönnum
fínnst þeir hjálparvana eða lítilsigidir
verður starfsemi tauga- og innkirtla-
kerfísins of ör og hættan á
sjúkdómum magnast. Þetta er mikil-
vægt atriði sem rannsóknarmenn frá
Yale háskóla fundu út frá
athugunum á öldruðum. Á stóru elli-
heimili í Nýja-Englandi voru fjörutíu
og sjö manns, karlar og konur, saman
á vist á einni hæð og þeim gefið vem-
legt frelsi. Þau máttu innrétta
herbergi sín að vild, ákveða hvaða
kvöld þau vildu fara á bíó og velja sér
vini. Öðmm hópi fjömtíu og fjögurra
manna var komið fyrir á annarri hæð.
Þau nutu ofurástúðar og umhyggju.
,,Þú þarft ekkert að gera fyrir þig
sjálfur,” sögðu starfsmennirnir.
„Segðu okkur hvers þú þarfnast og
munum sjá til þess að það verði
gert.”
Eftir því sem fram liðu stundir
virtist sjálfstæðari hópurinn
ánægðari, heilbrigðari og
framkvæmdasamari. Átján
mánuðum síðar vom aðeins sjö þeirra
látnir. Af dekraða hópnum hafði
dauðinn tekið þrettán manns.
Atferlissérfræðingar hafa átt
drjúgan þátt í að kveða niður þá trú
margra að lífið sé lotterí og að sjúk-
dómar séu einungis tilviljunum
undirorpnir. Þessir nýju sérfræðingar
álíta til dæmis að einangmn og sálar-
kvalir þær sem einkenndu líf
Howard Huges hafi mjög senni-
lega orsakað langvinnan sjúkdóm
hans og dauða; að byrðar Víetnam-
stríðsins hafí kvalið Lyndon B.
Johnson og átt þátt í hjartaáfallinu
sem dró hann til dauða og að útlegð
íranskeisara hafí flýtt fyrir dauða hans
af krabbameini.
Hvað er hægt að gera til þess að til-
finningarnar valdi ekki sjúkdómum?
,,Lærið að fara vel með hugann ekki
sxður en líkamann,” ráðleggur dr.
Dudley. ,,Ef menn gera sér grein fyrir
að tilfinningarnar kalla á líkamleg