Úrval - 01.03.1982, Síða 24
22
ÚRVAL
ekki einu sinni þótt einhver væri
látinn síga niður eftir fallhlífa-
opnaranum. Ef þeir reyndu að lenda
myndu þeir drepa hann. Hversu
mikið eldsneyti var eftir? ,,Með
þessari eyðslu eigum við eftir tæplega
tveggja stunda flug.
Á jörðu niðri heyrði Pierre Jomini,
einn úr fallhlífaklúbbnum, undarlegt
hljóð yfir höfði sér — heyra mátti
hvininn í fallhlífinni sem hafði fest.
Þegar hann leit upp sá hann hvar
fallhlífin og stökkvarinn héngu aftan
í Pilatusvélinni. Jomini var furðu
lostinn yfír þessari sjón og hljóp í
flugturninn á vellinum tii að vita
hvað hann gæti gert til hjálpar. Hann
kallaði upp vélina. Portier skýrði frá
því að Roux virtist vera ómeiddur og
rólegur en útlitið væri síður en svo
gott.
Stökkstjóranum og flugmanninum
datt í hug að þrátt fyrir að ekki væri
hægt að nálgast fallhlífarstökkvarann
úr vélinni sjálfri gæti vel verið hægt
að láta mann síga niður úr þyrlu og
losa flæktar línurnar og láta
manninn síðan falla til jarðar eftir að
hann hefði opnað öryggisfallhlífina.
Portier sagði Jomini að hringja og
biðja um þyrlu með vindu.
Hringt Í47 47 47
Jomini kom aftur í talstöðina. Búið
var að hafa samband við svissnesku
flugbjörgunarsveitina sem hafði
aðsetur í Zúrich. Portier tók að leggja
á ráðin. Gemm okkur í hugarlund að
einhver gæti náð til Roux: Þá gæti
stökkvarinn hafa misst meðvitund og
ekki væri um annað að ræða en lyfta
honum upp í þyrluna. Sá sem það
gerði yrði að hanga í línu frá
þyrlunni. Spurningin var: Hver ætti
sá maður að vera?
,,Það er best að ég reyni þetta
sjálfur,” sagði Jomini. Hann fór og
náði í fallhlífina sína og hjálminn,
batt flugbeittan hníf við beislið, sem
var utan um hann, og fór svo aftur í
stjórnherbergið og beið.
Kallið til flugbjörgunarsveitarinnar
í Zúrich — númerið er 47 47 47 —
kom klukkan 14.29. Haft var
samband við Adolf Rúfenacht sem
var þekktur fyrir snilldarlega vel
unnin björgunarstörf. Hann var
talinn besti vindustjóri í þjónustu
flugbjörgunarsveitarinnar. Áður en
tíu mínútur vom liðnar var hann
kominn af stað í þyrlunni á leið til
Yverdon.
Einnig var haft samband við þraut-
reyndan þyrluflugmann, Andreas
Haefele, sem var á björgunarvakt á
flugvelli við Bern. Þá var klukkan
14.40. Rauða Alouette III þyrlá^i
hans var komin í loftið kl. 14.54.
Pilatus-vélin hafði verið á flugi í
tæpa klukkustund. Hún hafði hring-
sólað í 3300 feta hæð yflr flug-
vellinum og flughraðinn var um 95
kílómetrar á klukkustund. Hægar gat
hún tæpast flogið svo ömggt væri. Á
jörðu niðri hafði safnast saman
nokkur hópur fólks, bæði forvitnir
áhorfendur og björgunarlið, sjúkra-
bílar, slökkvilið og lögregla.