Úrval - 01.03.1982, Side 27
FLÆKTUR / FALLHLÍFARB ÖNDUM
25
„Heyrðu, þeir voru að segja frá
undraverðri björgun fallhlífar-
stökkvara í útvarpinu. Sástu hvað
gerðist?”
„Bíddu nú aðeins hægur, pabbi,”
sagði Charles-André Roux, „ég held
að þú ættir að fá þér sæti: Ég þarf að
segjaþér svolítið.”
Ungur Ástrali kom til innritunar í herinn og var spurður hvaða starf
hann hefði. „Ég er sirkusfífl,” svaraði hann ánægður með sig.
Liðsforinginn sem tók niður upplýsingar hans skrifaði þær vand-
lega niður en var þó ekki viss um hvort hann ætti að taka þetta svar
alvarlega. Þess vegna svaraði hann stutt og án minnsta votts af brosi:
„Sama hér en fleiri tjöld.”
Skógareigandi nokkur var orðinn örvæntingarfullur vegna mikils
átroðnings fólks sem var að tína sveppi, anemónur, safna sniglum eða
vildi bara vera úti í náttúrunni með matarkörfuna sína. Á hverjum
mánudegi varð hann að gera við girðinguna, safna saman flöskum og
bréfarusli. Þetta tók langan tíma og hann var í fýlu yfir öllu saman.
Það var sama hve mörg skilti hann setti upp með „Aðgangur
bannaður” eða „Öviðkomandi verða hirtir af lögreglunni”, þau
voru öll virt að vettugi. Að lokum datt hann ofan á að setja upp svo-
hljóðandi skilti: „Mótefni gegn höggormsbiti fást í apótekinu sem er
15 km héðan. Meðferð verður að eiga sér stað í síðasta lagi hálftlma
eftir bit.”
Frá því hefur skógurinn hans fengið að vera í friði.
Allir þekkja breiðu dekkin sem notuð eru á eyðimerkurbíla og aðra
sem þurfa að fara um losaralegt landslag. Fyrirmyndin að þeim er
fóturinn á úlfaldanum. Fyrst voru dekk gerð með þessu lagi á
árunum milli 1930 og 1940 og notuð á sandauðnum Saudiarabíu.
Það var verkfræðingur frá Aramco, Richard Kerr að nafni, sem fann
þessi dekk upp. Hann ályktaði að besta ráðið til að finna eitthvað til
að koma í staðinn fyrir „skip eyðimerkurinnar” (úlfaldann) væri að
taka hann til fyrirmyndar. Þess vegna mældi hann gangflöt úlfaldans
og bar hann saman við þyngd dýrsins. Út frá því reiknaði hann
heppilegustu lögun og munstur sanddekksins. Þetta tókst svo vel að
ekki er betur gert enn þann dag í dag.