Úrval - 01.03.1982, Page 81
FRAMTÍÐARSJÓNVARPIÐ
79
30 árum og var ætlað sem leið til að
bæta móttökuskilyrði sjónvarps með
sendingu sjónvarpsmynda eftir kapal-
kerfi þar sem móttökuskilyrði voru
slæm. Kapalkerfíð náði hins vegar
ekki fótfestu á markaðinum í borgum
og úthverfum því að það höfðaði ekki
til fólks sem náði hvort eð er góðri
mynd á skjáinn og átti ekki erfitt með
að ná öllum nálægum rásum.
I september 1975 ákvað Time Inc.
Home Box Offlce (HBO) að notfæra
sér fjarskiptahnött. Þá voru aðeins tvö
kapalkerfi í Bandaríkjunum sem
mögulega gátu notfært sér hnetti.
Það þurfti að leggja fleiri slík kerfi og
hvert þeirra kostaði hundrað þúsund
Bandaríkjadali svo að ólíklegt mátti
teljast að fyrirtækin gætu aflað fjár til
að reisa fleiri móttökustöðvar.
Þessi ráðstöfun HBO reyndist vera
eitthvert snjallasta viðskiptabragð í
sögu sjónvarps. Skyndilega gátu
kapalstöðvar um gjörvallt landið
boðið áhorfendum að sjá annað en
þeir gátu yfirleitt séð í sjónvarpinu:
nýjar, óstyttar myndir. Um leið
lækkuðu tækniframfarir kostnaðinn
við kapalkerfi. Stöðvunum fjölgaði
og þeim sem fetuðu í fótspor HBO.
Dagskrárnar urðu fjölbreyttari og því
auðveldara að selja kapalkerfin. Nú
telja menn að um 22% (16,6
milljónir) allra sjónvarpsáhorfenda í
Bandaríkjunum noti kapalkerfi.
Næstu ríu ár er gert ráð fyrir að
prósentutalan fari upp í 36 eða 50%.
Þessi sameining fjarskiptahnattar
og kapalkerfís hefur getið af sér eins
konar yfirstöð en með því er átt við
venjulega sjónvarpsstöð sem sendir
frá sér til nágrennisins en um leið til
gervihnattar og nær því til kapalkerfa
hvar sem er. R.E. ,,Ted” Turner III
hóf þessa starfsemi í desember 1976
þegar hann hóf útsendingar frá
Atlantastöð sinni, um Stacom I.
Turner hefur næstum yfirnáttúrlega
trú á yfirstöðvum. Hann segir: ,,Þær
eru framtíðin.”
Yfirstöðvarnar hafa bæði vakið
áhuga og uppnám innan fjölmiðla.
Fréttamenn segja að útsendingarnar
muni bitna á sveitastöðvum því að
engin stöð leggi áherslu á efni frá
heimaslóðum ef hún geti sent út til
alls landsins.
Annar angi af fjarskiptahnatta-
kerfinu er það að menn geta tekið
beint við útsendingu heima. Það
getur hver sem er keypt sér ,,disk” á
þakið hjá sér til að taka við út-
sendingum. Neiman-Marcus var með
sérstakt jólatilboð 1979 — aðeins
36.500 dali (kr. 345.000) fyrir
„diskinn”!
Verðið hefur lækkað mjög frá því
1979 og er nú ekki nema frá þrjú
hundruð dölum (kr. 2.800) upp í
nokkur þúsund. Innan skamms
munu Bandaríkjamenn sjá svona
diska spretta upp eins og sveppi á
þökunum í nágrenninu.
Samtímis sýna fyrirtæki vaxandi
áhuga á að nota sér fjarskiptahnetti í
viðskiptum sínum. 1977 notfærði
Lanier Business Products Inc. sér
Westar fjarskiptahnöttinn til að