Úrval - 01.03.1982, Page 84
82
ÚRVAL
GÖNGUFERÐ
FRÁ
** RÚSSLANDI
Þetta var einföld áætlun en fífldjörf. Hann
var aðeins með einn bakpoka með nesti og
búnaði þar sem hann fetaði sig, skref fyrir
skref, nær norðvestur landamærum Rúss-
lands. Hugmynd hans var að komast yfir til
finnlands og þaðan yfir til Svíþjóðar, sem
hann vissi öruggt hæli. Það eina sem gat
komið í veg fyrir að flóttinn tækist var há og
öflug landamæragirðing Sovétmanna, frán-
eygi.- landamæraverðir og eitthvert erfiðasta
landsvæði Evrópu til yfirferðar.
En Alexander Jourjine vogaði öllu, bauð öllu
þessu birginn. Hér er sagan af þessu tuttugu
og þriggja daga ferðalagi — mannraun sem
reyndi til hins ýtrasta bæði á þrek og þol.
B
ífc iðröðin við miðasöluna á
^5 Leningradsky járn-
brautarstöðinni í Moskvu
*
*
*
var endalaus. Það tók
Alexander Jourjine, 26 ára eðlis-
fræðing, nýlega brautskráðan frá
Moskvuháskóla, marga klukkutíma
að komast að miðasöluopinu. Þetta
var í ágúst 1979 og Jourjine var
nýkominn aftur til borgarinnar eftir
erfiða tíu daga ferð með vini sínum,
fótgangandi um Karpatafjöllin. En
nú var hann, innan tveggja sólar-
hringa frá því að þeirri ferð lauk,
farinn að búa sig undir aðra ferð,
miklu meira krefjandi — ferð sem átti
eftir að ráða úrslitum í ævi hans. Því
þessi ungi hæfileikamaður hafði