Úrval - 01.03.1982, Page 114

Úrval - 01.03.1982, Page 114
112 ÚRVAL fyrir ofan hann og allt í kringum daiinn var veggur. Þegar hann komst loks út úr dals- mynninu og út í sólina komu húsin honum undarlega fyrir sjónir. Ólíkt ruglingslegum byggingum í þorpum Andesfjalla voru þessi hús í sam- felldri röð, sömu megin við aðalgötu sem var sérstaklega hreinleg. Á stöku stað vom dyr á byggingunum en enginn gluggi rauf jafna heildar- myndina. Ekki langt frá voru þrír menn bera fötur og notuðu vatnsgrindur ti að létta sér burðinn. Nunes hrópaði hátt. Mennirnir stönsuðu og sneru höfðum í allar áttir. Það leit ekki ú' fyrir að þeir sæju hann. Nunes hrópaði aftur. „Þessi bjánar hljóta að vera blindir,” sagði hann svo. Þegar hann komst loks til þeirra stóðu þeir saman hlið við hlið og sneru eyrum að honum. Hann sá að augnalokin voru aftur og innfallin, eins og augun undir hefðu skroppið saman. „Maður,” sagði einn þeirra á lítt þekkjanlegri spönsku. „Maður eða andi — kominn ofan úr klettinum. ’ ’ Nunes hélt áfram öruggum skrefum. Upp í huga hans komu allar gömlu sögurnar um týnda dalinn hinna blindu og gamla máltækið: / landi blindingjanna er eineygði maðurinn kóngur. Hann heilsaði þeim. „Hvaðan kemur hann, bróðir Pedro?” spurði einn. „Ég kom yfír fjöllin,” svaraði Nunes. „Frá stað nálægt Bogotá, þar sem eru hundruð þúsunda manna, þaðan sem ekki sést til borgarinnar. ’’ „Sést?” muldraði Pedro. Hann undraðist samtaka hreyfíngar þeirra er þeir nálguðust hann. Hann hörfaði aftur á bak, frá fálmandi fíngrum þeirra, en þeir náðu honum. Svo þukluðu mennirnir hann. Þeir rannsökuðu augun, með kviku augnlokunum, mjög furðulegir hlutir. „Skrýtin skepna, Correa,” sagði Pedro. „Leiðum hann fyrir öldungana.” „Éggetséð,” sagðiNunes. „Séo?” sagði Correra. , 5 séð,” sagði Nunes en rakst Ui ið í fötu Pedros sem flæktist fyn onum. „Skynjun hans er ennþá ófull- komin,” sagði þriðji maðurinn. „Hann rekur sig á og talar meiningarlaus orð. Leiðum hann.” „Eins og þú vilt,” sagði Nunes og hann hló á meðan þeir leiddu hann. í ÞORPINU VAR honum ýtt í gegnum dyr en í herberginu fyrir innan var svartamyrkur. Raddir nokkurra eldri manna hófu að spyrja hann og Nunes reyndi að útskýra fyrir þeim heiminn sem hann hafði dottið ofan úr. Það var sama hvað hann sagði, þeir hvorki trúðu honum né skildu neitt. í fjórtán mannsaldra hafði þetta fólk ekki séð umheiminn: saga hins ytri heims og nöfn á ýmsum sjáanlegum hlutum voru orðin þeim framandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.