Víðförli - 01.12.1952, Side 14

Víðförli - 01.12.1952, Side 14
SIGURBJÖRN EINARSSON: HEILÖG SKÍRN i. Vér erum í huganum staddir við Jórdan. Jóhannes skírári er þar fyrir, spámaðurinn, er skyldi ganga fyrir Drottni, til að greiða vegu hans (Lk. 1,7)), undirbúa komu Guðs sonar, búa honum al- tygjaðan lýð (Lk. 1,17), Hann hefur samkvæmt þessu ætlunar- verki sínu flutt yfirbótarboðskap og skírt iðrunarskírn. Hann hefur vakið eftirvæntingu hjá lýðnum (Lk. 3,15) og margir hafa gengist undir skírn hans. Það var játning frá þeirra hálfu: Þeir vildu vera viðbúnir, þegar Messías kæmi og ganga honum á hönd. Jóhannes hefur og boðað, að Guðs Smurði muni skíra: Ég skíri yður að vísu með vatni, en sá kemur, sem mér er máttkari og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans, hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi (Lk. 3,16). Skírn hins komandi konungs verður sem sé ekki athöfn til undirbúnings undir við- töku Guðsríkis, hún verður gjöf Guðsríkis. Þá kemur Jesús frá Galileu til Jórdanar. Jóhannesi kemur á óvart, með hverjum hætti hann kemur og hvert erindi hans er: Jesús óskar eftir að þiggja skírn af Jóhannesi. Jóhannes segir undrandi: Þú kemur til mín, og þó er það ég, sem þarfnast þinnar skírnar, en þú ekki minnar (Mt. 3,13n). Nú þegar þú ert kom- inn, er minn tími á enda, mínu hlutverki lokið, nú hefst tím- inn, sem ég hef þráð og spáð um, þín heilags anda, þín eldlega hjálpræðisskírn. En Jesús svarar: Gjör þú eins og ég bið, því að það er Guðs

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.