Víðförli - 01.12.1952, Qupperneq 33
ÖRLÖG ÍSRAELS FRÁ KRISTNU SJÓNARMIÐl
95
landi, sem þeim var í upphafi gefið af Gu8i til œfinlegrar eignar
og sem be8i8 hefur heimkomu þeirra [19 aldir.
i
4.
Hinsvegar er því ekki fljótsvarað, hvers vegna fylling tím-
ans nú virðist upp runnin í harmsögu Gyðingaþjóðarinnar og
hvert hlutverk hennar sé í framtíðinni.
Heimkoman til Palestínu hefur orðið með undursamlegum hætti.
„Sá maður í ísrael, sem ekki trúir á undur, er ekki raunsær,“
segir Ben Gurion, forsætisráðherra Israelsríkis. Sigur Gyðinga í
Palestinu kom öllum á óvart. Almennt var búist við annarri út-
komu á ójöfnum leik. Annars vegar voru Gyðingar, 600 þús. með
lítt þjálfaðan her og illa búinn að vopnum. Hins vegar bandalag
fimm Arabaríkja með samtals 40 milljónum íbúa og öflugan her
búinn fullkomnustu vígvélum, og naut auk þess nokkurs stuðnings
Breta.
Nú er svo komið að Israelsríki er orðið hernaðarlega öflugt.
Ibúum hefur fjölgað úr 600 þús. upp í talsvert á aðra milljón.
Gyðingar hafa þegar komið sér vel fyrir í Iandinu. Iðnaður og
landbúnaður stóreykst. Ýmsum er til þekkja hefur orðið hugsað
til fyrirheitis er segir: „Ég vil gróðursetja þá í landi þeirra, svo
að þeir skulu ekki framar upprættir verða úr landi sínu.“ (Amos).
Ég hef reynt að gera mér grein fyrir hvað valdið hefur alda-
hvörfum í sögu Gyðinga. Af augljósum staðreyndum skal þriggja
getið:
Fyrst handleiðslu Guðs. En Guð hefur, samkvæmt hinni miklu
prédikun Páls í Aþenu, „látið sérhverja þjóð manna byggja allt
yfirborð jarðarinnar, er hann hafði ákveðið fyrirsetta tíma og
takmark bólstaða þeirra.“ I þeim efnum ræður engin tilviljun.
Því næst óslökkvandi heimþrá Gyðinga. Palestina hefur alltaf
verið þeirra land, Gyðingaland, hvort sem þeir voru þar búsettir
eða ekki. Þeir hafa hvergi annarsstaðar átt heima. Óðir og upp-
vægir risu þeir gegn hverri tillögu um þjóðarheimili í einhverjum