Víðförli - 01.12.1952, Page 76
138
VÍÐFÖRLI
Fimmta boðorðið hljóðar svona hjá Jesú: „Hver, sem reiðist
bróður sínum, verður sekur fyrir dóminum.“ (Mt. 5, 22). Sjötta
boðorðið: „Hver sem lítur á konu með girndarhug, hefur þegar
drýgt hór með henni í hjarta sínu.“ (Mt. 5, 28) Annað boðorð-
ið: „Ræða yðar skal vera: já, já; nei, nei, en það, sem er umfram
þetta, er af hinu vonda.“ (Mt. 5, 37) Útfærsla Gamla testament-
isins á 5. boðorðinu „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ verður:
„Þér skulið ekki rísa gegn meingjörðamanninum en slái einhver
þig á hægri kinn þína, þá snú þú einnig hinni að honum.“ (Mt.
5,39). Og sjálft boðorðið um mannkærleikann leggur hann þann-
ig út: „Elskið óvini yðar, gjörið þeim gott, sem hata yður, blessið
þá, sem bölva yður og biðjið fyrir þeim, er sýna yður ójöfnuð“
(Lk. 6, 27n).
Þessi útlegging Jesú á boðorðunum er ekki nein stóryrði, hún er
mótuð af því, að sá, sem talaði, elskaði náungann eins og sjálfan
sig. Því gat hann ekki lagt boðorðin öðruvísi út. Oss finnst út-
leggingin ganga alltof langt vegna þess að vér höfum ekki þenn-
an kærleika og hann mótar ekki þann heim, sem vér lifum í. í
því ríki Guðs, sem Jesús boðar og heitir þeim, sem fylgja honum,
ræður kærleikurinn. Því getur Jesús ekki talað öðruvísi um boð-
orðin en hann gerir.
Ef vér hverfum frá Fjallræðu Jesú og lítum á Fræði Lúthers,
sjáum vér, að Lúther fer í túlkun sinni alveg eftir orðum Jesú.
Lúther byrjar skýringu allra tíu boðorðanna með orðum úr skýr-
ingunni á fyrst^ boðorðinu: „Vér eigum að óttast og elska Guð,
svo að vér . .Með þessu gefur Lúther til kynna, að kærleikur-
inn sé útlegging boðorðanna. í skýringu hinna eínstöku boða
finnum vér þá líka, að krafa boðorðsins fer yfir öll takmörk.
Fjórða boðorðið býður, að vér þjónum, hlýðum, elskum og virð-
um — ekki aðeins foreldrana, heldur alla, sem yfir oss eru settir,
Fimmta boðorðið bannar ekki aðeins, að vér gjörum náunganum
mein á líkama hans, heldur býður, að vér björgum honum og
hjálpum í allri líkamlegri neyð. Sjötta boðorðið krefst hreinleiks
og skírlífis í orðum og gjörðum, sjöunda að vér hjálpum náunga
vorum að geyma eigna sinna og efla atvinnu sína. Þannig má