Víðförli - 01.12.1952, Síða 42
104
VÍÐFÖRLI
urstöður guðfræðinnar fram til síðustu aldamóta. Hann færir rök
að því, að kvöldmáltíðin sé þungamiðjan í trúarlífi frumkristn-
innar, en hún sé ekki fyrst og fremst minningarathöfn, endurtekn-
ing síðustu páskamáltíðar Jesú með lærisveinum sínum til minn-
irígar um dauða hans, heldur samfélagsmáltíð við hinn upprisna,
fagnaðarhátíð í forgarði þess guðsríkis, sem frumkristnin vænti.
Því hafi þessi athöfn ekki aðeins verið höfð um hönd á skírdags-
kvöld, heldur hvern sunnudagsmorgun, á upprisudegi Jesú, og
fagnaðarblærinn, sem yfir henni hvíldi, hafi gefið henni heitið,
sem hún gekk undir: Þakkargjörð.
III.
Næsta viðfangsefni Schweitzers var Messíasar-vitund Jesú og
skilningur hans á merkingu dauða síns.1) Og í rannsókn þessara
meginatriða beitti Schweitzer þeirri grundvallarreglu, sem áður
er getið, að vísindin eigi enga aðra leið í námunda við Jesú en
þá, sem liggur um hugmyndaheim samtíðar hans. Nú er það stað-
reynd, að síðgyðingdómurinn lifði og hrærðist í eftirvæntingu
komandi, yfirnáttúrlegs dýrðarríkis, sem útvalinn, yfirjarðneskur
konungur myndi setja á fót með fulltingi Guðs við endalok ald-
anna. Mun ekki gerandi ráð fyrir því, að þessar skoðanir veiti
nokkra innsýn inn í huga Jesú og muni geta varpað einhverju
Ijósi yfir orð hans og atferli? Menn gerðu yfirleitt ekki ráð fyrir
því um aldamótin síðustu, mönnum þótti þessar skoðanir allt of
öfgakenndar og fráleitar til þess að þær hefðu getað átt nokkur
veruleg ítök í huga Jesú. Forsendurnar fyrir þessu áliti og álykt-
anirnar, sem á þeim voru byggðar, tekur Schweitzer til gaumgæfi-
legrar meðferðar í þeirri bók sinni, sem kunnust er, og kom út í
1. útg. 1906, en það er sagan um rannsóknirnar á ævi Jesú um
hálfrar annarrar aldar skeið.2)
■ 1) Das Messianitáts-und Leidensgeheimnis. Eine Skizze des Lebens Jesu.
Túb.
2) Von Reimarus zu Wrede. Eine Geschichte der Leben-Jesu-Forsch-
ung. Önnur útg. 1913 með heitinu (og síðari útg.) Geschichte der Leben-
Jesu-Forschung.