Víðförli - 01.12.1952, Qupperneq 63
REGIN PRENTER, prófessor:
I
LÖGMÁL OG EVANGELIUM
Tvœr myndir Gu8s ords.
Allur kristindómur.byggist á þeirri staðreynd, að Guð hefur við
oss talað mennina. Kristindómur er ekki draumur vor sjálfra um
Guð né reynsla vor sjálfra af honum. Að vísu kemst enginn,
sem mannlegu lífi lifir, hjá 'því að verða lians var. Því dreymir
menn um Guð og brjóta heilann um hann, það hafa hugsuðir og
skáld gert á öllum tímum. Og brot af sannleik felst í slíkum
draumum, einnig draumum heiðinna trúarbragða. En eins og í
öllum draumum er sannleikurinn hér svo samvafinn ímyndun og
skynvillum, að enginn kostur er að henda reiður á honum. Eins
er um þá trúarreynslu, sem trúhneigðir menn hafa á öllum tím-
um eignast. Brot af veruleik Guðs felst í slíkri reynslu. En eins
°g í allri mannlegri reynslu blandast einnig hér óskir og hneigðir
mannsins inn í, svo að ómögulegt er að segja, hvar veruleik Guðs
sleppir og þrár mannsins sjálfs taka við. Ekkert sannlegt sam-
band við Guð verður byggt á því, sem vér getum sjálfir nasað
upp. Kristindómurinn byggist ekki heldur á slíku, heldur hinu,
að Guð hefur sjálfur talað til vor. Og það orð, sem hann hefur
sjálfur talað, vill hann láta boða mönnum.
Það er auðskilið, að raunverulegt samband við Guð verður að
byggjast á því, sem Guð hefur sjálfur sagt, og ekki hinu, sem vér
mennirnir þykjumst geta komizt að út frá eigin hugleiðingum og
reynslu. En hér verður vandi á vegi: Orðið, sem Guð hefur talað
°g hann vill láta boða, er ekki í einni mynd, heldur tveim —
lögmál og evangelium eru tvær gjörólíkar myndir Guðs orðs, sem
ekki má undir neinum kringumstæðum blanda saman eða hafa