Víðförli - 01.12.1952, Qupperneq 58
120
VlÐFÖRLI
ar. Boðun kirkjunnar er ævinlega fólgin — ekki í því að binda
mönnurn byrðar, hvorki hugsun þeirra né öðrum kröftum, held-
ur í hinu að segja blátt áfram: Komið og varpið byrðunum á
hann, sem vill bera þær með oss og fyrir oss og getur það, kom-
ið og sjáið, komið, reynið og þreifið á, þiggið ríkdóminn, sem í
Kristi er fólginn. „Mér var af náð falið þetta hlutverk: að boða
fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists os upp-
lýsa alla um það, hver verið hafi tilgangurinn með þessum
leyndardómi, sem frá eilífð hefur verið hulinn í Guði, sem allt
hefur skapað. Eg beygi kné mín fyrir Föðurnum, sem hvert fað-
þrni fær nafn af á himni og jörðu, að hann gefi yður af rík-
dómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið
innra með yður, til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjört-
um yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika, svo
að þér fáið, ásam’t öllum heilögum skilið, hver sé breiddin, lengd-
in, hæðin og dýptin og komizt að raun um kærleika Krist°, sem
yfirgnæfir þekkinguna og náið að fyllast allri Guðs fyllingu“
ÍEfes 3.).
Þetta er afstaða kirkjunnar, tilbeiðsla hennar, bæn og boðun.
Vér höfum þegið af gnægð Hans náð á náð ofan. Komið og sjáið,
hversu mikla hluti Drottinn hefur gjört.
Að þekkja Krist er að þekkja velgjörðir hans. Og sá, sem kemst
að raun um velgjörðir hans, hann verður þakklátur, auðmjúkur
þátttakandi í lofgjörð og tilbeiðslu aldanna, þar sem María guðs-
móðir er forsöngvarinn, þeirri lofgjörð, sem túlkar þá vitund
allrar reynslu, að engin tign, sem honum er tileinkuð, skjóti yfir
markið eða sé slík, að hann valdi henni ekki, rísi ekki undir
henni, þótt það sé allt með ófullkomnum hætti tjáð, þegar mann-
legar tungur taka undir það, sem englavarir naumast valda.
Hvernig hann kom — það er ekki það, sem mestu máli skiptir,
heldur hitt, áð hann kom, lifði og leið sem sannur maður, lifir og
rikir sem sannur Guð og þó í eilífri bróðurafstöðu til vor, sem
hann lifði meðal og leið fyrir.
Það er grundvöllur trúar minnar og lífs, að sá, sem fæddist af
Maríu meyju og var píndur undir Pontiusi Pilatusi, er bæði bróð-
I