Víðförli - 01.12.1952, Side 53
MARÍA GUÐSMÓÐIR
115
ustu fyrirlitningu á manneskjunni, sem nokkurn tíma hefur ollið
út úr sýktu hjarta gullþorstans?
En vér tilbiðjum ekki Maríu, eins og rómverskir bræður gera
enn í dag og meira nú en nokkurn tíma var gert á miðöldum.
Hún var maður sem vér. Hún þarfnaðist hjálpræðis og öðlaðist
sömu hjálp, sama frelsara og vér. Heitið, sem hún hlaut, María
guðsmóðir, er þáttur í lofgjörð kynslóðanna fyrir hann, viður-
kenning þess og þakkargjörð, hver og hvílíkur sá sonur var, sem
hún fæddi í þennan heim.
Þau stóðu saman tvö við krossinn síðast, María og Jóhannes.
Þau áttu saman heilagt leyndarmál, vissuna um, að hinn smáði,
píndi maður væri „heilagur, sonur Guðs“. Hvorugt gat valdið
þeirri raun, að þessi skyldu þurfa að verða afdrif hans. Hvernig
getur þetta verið? Manni sést gjarnan yfir hvað þetta litla vers
pislarsögunnaí er stórkostlegt: „Hjá krossi Jesú stóð móðir hans.“
Hún stóð þar, þegar lærisveinar hans voru horfnir. Bræður hans,
aðrir synir hennar, voru þar ekki. Jósef hefur verið látinn. Hvers
vegna gat hún lagt það á sig að standa þarna, þegar sonur hennar
píndist til dauða, ofan á kvalirnar upp hengdur sér og allri ætt
sinni til opinberrar háðungar? Hvað gaf henni þrek til þess?
Var það ekki minningin um undursamleg skilaboð, sem hún hafði
fengið, óskiljanlega háleit vitneskja, sem ekki gat verið tál? Minnt-
ist hún orða guðsmannsins í musterinu, þegar hún kom þangað með
sveininn nýfæddan: Hann verður tákn, sem móti verður mælt, sverð
mun jafnvel nísta þína eigin sál? Minntist hún ekki enn annarra
orða, — orða, sem hún hefur þá e.t.v. ekki verið farin að trúa
neinum fyrir, en „geymdi í hjarta sínu“? Hún eygði ekki merkingu
þeirra til fulls, allra sízt þá. En hún vissi, að merking þeirra
hlaut með einhverju móti að koma fram. Því gat hún ekki slitið
sig frá krossinum.
Hjá henni stóð Jóhannes einn, lærisveinninn, sem Jesús elskaði.
Hann skráði síðar guðspjall sitt. Það hefst á þessum orðum: í
upphafi var orðið og orðið var hjá Guði og orðið var Guð. Það
var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru gjörðir fyrir það, og án