Víðförli - 01.12.1952, Síða 73
LÖGMÁL OG EVANGELIUM
135
böðlunum. Nei, þar er ekkert slíkt einstaks boðorð. Það er öldung-
is óþarft því kærleiksboðorðið er þar. Mörg dæmi svipuð mætti
nefna.
Samt eru hin einstöku boðorð ekki óviðkomandi kærleiksboð-
orðinu. Páll nefnir einmitt í Róm. 13 fjögur hinna tíu boðorða,
sem eru fólgin í kærleiksboðorðinu. Og við ríka unglinginn nefn-
ir Jesús fimm hinna tíu boðorða, sem hann lætur miða að hoð-
orðinu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig (Mt. 19,18).
Boðorðin, sem Jesús og Páll vitna til, eru ekki reglur, sem
komið geti í staðinn fyrir fundvísi kærleikans. Þau eru ekki ná-
kvæmar lífsreglur, þau segja ekki, hvað gjöra skal, heldur eru
þau bending, sem segir, í hvaða átt ég skuli fara, þegar ég vil
finna náungann og þann vanda hans, sem kærleikurinn á að leysa.
„Heiðra skaltu föður þinn og móður.“ Þetta boðorð nefnir
ekki hvernig vér eigum í verki og orði að heiðra föður og móður.
Því að þetta boðorð er „fólgið í“ kærleiksboðorðinu. Það ætlar kær-
Ieikanum að finna, með hvaða verkum og orðum faðir og móðir
heiðrast. Það bendir á samband foreldra og barna og segir: I
þessu sambandi stendurðu einnig frammi fyrir náunga þínum og
það samband mótast af því, að foreldrar þínir eru sett yfir þig.
Þetta er tjáð með orðinú „heiðra.“ Kærleikur þinn til þeirra verð-
ur að mótast af þessari aðstöðu. En hvernig þú heiðrar þau í ein-
stökum atriðum, um það veitir boðorðið þér enga reglu. Það verðr
ur kærleikurinn að finna sjálfur. Og það er nægilegt verkefni
fyrir hann — ævina á enda.
„Þú skalt ekki morð fremja.“ Hér er ekkert ákveðið sagt um
það, hvaða verk, orð og hugsanir þú eigir að forðast til þess að
vinna ekki náunga þínum tjón á lífi sínu. Allir höfum vér hugboð
um, að það nægi ekki að forðast morð í merkingu hegningar-
laganna. Fimmta boðorðið heimtar meira af oss. Sé það „fólgið í“
kærleiksboðorðinu, þá lætur það sér ekki nægja hið auðgerðasta,
það vill, að vér forðumst allt, sem á einn eður annan hátt getur
orðið náunganum til meins. Ef kærleikurinn nær tökum á boðorð-
inu og leggur það út, hljóðar það svo: „Meiri elsku hefur enginn
en þá, að hann leggur líf sitt í sölurnar fyrir vini sína“ (Jh. 15,