Víðförli - 01.12.1952, Side 32

Víðförli - 01.12.1952, Side 32
94 VÍÐFÖRLI mun dreifa þér meðal þjóðanna frá einu heimskauti til annars ... Og meðal þessara þjóða munt þú eigi megá búa í næði, og hvergi mun vera hvíldarstaður fæti þínum, heldur mun Drottinn gefa þér skjálfandi hjarta, þrotnandi augu og ráðþrota sál.“ Mjög víða í spádómsritum Gamlatestamentisins er þannig, mörg- um öldum fyrir fram, brugðið upp bókstaflega réttri lýsingu á ömurlegum örlögum þessarar útvöldu þjóðar. Því síður höfum vér ástæðu til að efa margítrekaða spádóma um, að þeir muni aftur leiddir verða þeim til lands feðra sinna. Enda bendir allt til þess að slíkir spádómar séu nú í þann veginn að rætast. Hvað kemur til að Gyðingar hafa ekki algerlega blandast öðr- um þjóðum á umliðnum 19 öldum, sem þeir hafa verið í dreifingu? Hafa þó miklu stærri og voldugri þjóðir horfið í þjóðahafið á skemmri tíma. En frá 53 þjóðum skila Gyðingar sér nú heim ti) lands feðra sinna. Hvað kemur til að þeir hafa ekki fyrir löngu hlotið öruggan samastað í einhverju öðru landi? Hvað eftir annað kom það til tals, eins og t.d. í Argentinu, Uganda, Abessiniu, Madagaskar og víðar. Bendir það ekki til þess að þeim sé annað hlutskipti ætlað? Og vegna hvers varð engin önnur þjóð til þess að festa sér Palestinu fyrir fullt og allt, eftir að Gyðingar voru hraktir það- an? Dr. Björn Þórðarson drepur á það og segir: „Það er reyndar einkennilegt, að engin þjóð hefur til þessa dags megnað að setja óafmáanlegt fangamark sitt á þetta land, riema smá þjóð, sem skolað hafði þarna á land einhvern tíma í grárri forneskju, þjóð sem beið lægri hlut fyrir ágengni annarra . ..“ Hvað kemur til að verið hefur, ef svo mætti segja, húsbóndalaust allt til þessa í einu frjósamasta landi veraldarinnar og að það hefur legið í auðn að heita má, af því að mannshandarinnar naut þar ekki við? Palestina er þó öðrum löndum fremur í þjóðbraut, á krossgötum þriggja heimsálfa. Hvers vegna urðu engir til að hagnýta sér steinsölt Dauðahafs- ins, eina hinna miklu gullnáma veraldarinnar? Þannig mætti lengi spyrja og gefst þó ekki nema eitt svar: Gytiingar eiga enn hlutverki a& gegna sem sjálfstœfi þjófi í þvl

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.