Víðförli - 01.12.1952, Page 36

Víðförli - 01.12.1952, Page 36
98 VÍÐFÖRLI margþætt starf kristniboðanna hefur borið. Samkvæmt skýrslum fyrir árið 1944 voru kristnir menn í Palestinu alls um 140 þús. en af þeim voru 40 þúsund grísk- kaþólskir. 6. Fall Gyðinga sökum þess að þeir höfnuðu Kristi, hefur engan tekið sárar en Pál postula, eins og lýsir sér bezt í upphafi 9. kapi- tula Rómverjabréfsins. En þar segir: „Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki ... að ég hef hryggð mikla og sífellda kvöl í hjarta mínu. Því að þess mundi ég óska að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi til heilla fyrir bræður mína, ættmenn mína að holdinu, en það eru ísraelsmenn.“ Páli er hinsvegar ljóst að Guð hefur ekki með öllu útskúfað ísra- elsmönnum. Leifar eru eftir orðnar. Sjálfur er hann eitt dæmi þess. Uppi hafa verið á öllum öldum síðan fleiri eða færri Gyð- ingkristnir menn. Páll segir ennfremur að sökum falls þeirra hafi kristindómurinn borist til heiðingjanna og bætir síðan við þessu: „En ef fall þeirra er heiminum auður og tjón þeirra heiðingjum auður, hve miklu fremur þá ef þeir koma með tölu.“ Von sína um að ísrael sjái að sér, byggir Páll óefað á spádóm- um Gamla testamentisins, sem gefa ótvírætt í skyn, að á sínum tíma muni fara saman þjóðleg og andleg endurreisn ísraels öllu mann- kyni til hinnar mestu blessunar. En eru nú nokkrar líkur til að svo muni verða? Það er þegar staðreynd að Gyðingar hafa að nokkru endur- heimt land sitt og sjálfstæði. Margt bendir til þess, eins og ég hef þegar drepið á, að samfara því verði stórfelld breyting andlegs viðhorfs þeirra. Gyðingar voru í upphafi brautryðjendur kristniboðs meðal margra þjóða. Vestevrópskar þjóðir af latneskum uppruna tóku við af Gyðingum og héldu áfram kristniboði um nokkurra alda skeið. Frá upphafi 19. aldar, kristniboðsaldarinnar miklu, og allt til þessa, hafa engilsaxneskar og germanskar þjóðir haft forustu um kristniboðsframkvæmdir. Nú þykir margt benda til þess að

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.