Víðförli - 01.12.1952, Side 39

Víðförli - 01.12.1952, Side 39
ALBERT SCHWEITZER 101 „En“, segir Schweitzer, „nú var mér það knýjandi innri þörf að pré- dika. Mér fannst það svo dásamlegt að mega á hverjum sunnudegi tala við söfnuð um mestu íhugunarefni tilverunnar.“ Samhliða því sem Schweitzer bjó sig undir hæstu lærdómsgráður í guðfræði, gegndi hann prestsstarfi sem aðstoðarprestur, annaðist aðallega síðdegismessur og fermingarundirbúning. Auk þess hljóp hann oft undir bagga með föður sínum, sem var sóknarprestur í litlum söfn- uði í nágrenninu. I sjálfsævisögu sinni farast Schweitzer orð á þessa leið: „Alltaf skrifaði ég ræður mínar, oft tvisvar eða jafn- vel þrisvar áður en ég hreinritaði þær. En ég var ekki bundinn við handritið, heldur varð ræðan oft öll önnur, þegar ég flutti hana. Ræður mínar við síðdegismessurnar — sem ég leit nánast á sem kyrrlátar helgistundir — voru oft svo stuttar, að einu sinni kvört- uðu einhverjir yfir því við sóknarprestinn. Hann varð að kalla mig til yfirheyrslu í þessu máli, en var reyndar sjálfur engu síður feiminn en ég. Þegar hann spurði mig, hverju hann ætti að svara þessum óánægðu safnaðarmönnum, bað ég hann að segja þeim, að é£ væri aðeins lítilfjörlegur aðstoðarprestur og yrði að hætta að tala, þegar ég hefði ekki meira að segja um texta dagsins. Með það lét hann mig fara en veitti mér um leið væga áminningu um að vera ekki skemur í stólnum en 20 mínútur.“ Þrisvar í viku bjó hann drengi undir fermingu. Hann kveðst hafa gert sér far um að láta þessar stundir verða drengjunum til óblandinnar gleði. Hann varði alltaf nokkrum hluta hverrar stund- ar til þess að lesa fyrir þá ritningarorð og sálmavers og láta þá hafa þetta yfir með sér, til þess að festa það í minni þeirra, svo að þeir gætu haft það með sér sem veganesti út í lífið. „Ég setti mér það takmark,“ segir hann, „að láta sannindi gleðiboðskapar- ins snerta hjarta og hugsun fermingardrengjanna og hjálpa þeim með því til trúar, svo að þeir gætu staðizt þær freistingar til van- trúar, sem myndu verða á vegi þeirra. Ég reyndi einnig að vekja þeim kærleika til kirkjunnar og þörfina fyrir að leita sálu sinni hátíðarstunda við messugjörðina á hverjum sunnudegi. Ég kenndi þeim að bera lotningu fyrir kenningum kirkjunnar en muna jafn- framt orð Páls: Þar sem andi Drottins er, þar er frelsi. Ég komst

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.