Víðförli - 01.12.1952, Síða 74

Víðförli - 01.12.1952, Síða 74
136 VÍÐFÖRLI 13). Þannig eru í rauninni engin takmörk fyrir þeim verkefnum, sem þetta boðorð felur í sér. Það lætur engar reglur í té. En það bendir á baráttuna, sem vér menn heyjum hver við annan, þar sem vér reynum hver og einn að komast yfir lífsgæðin, njóta vor og fá óskum vorum fullnægt. Þessi barátta er oft hörð. Því vér viljum alltof oft allir ná í það sæti, sem aðeins einn getur hreppt. Vér þekkjum þetta. Og þetta er það, sem boðorðið bendir á og segir: „Hér, hér er náungi þinn, elskdðu hann eins og sjálfan þig í þessum kringumstæðum.“ „Þú skalt ekki drýgja hór.“ Boðorðið nefnir ekkert ákveðið um það, hvað átt sé hér við. Augljóst er, að eitthvað meira býr hér undir en opinber hjúskaparbrot. Því að ef þetta boðorð er „fólgið í“ kærleiksboðorðinu getur ekki verið nóg að hjóna- bandið sé þokkalegt tilsýndar. Það er kærleiksskorturinri, sem hjónabönd stranda á, m. ö. o. sjálfselskan í öllum þeim myndum, sem fyrir geta komið í sambandi hjóna. Sjötta boðorðið bannar allt þetta undantekningarlaust, ef það er túlkað í ljósi kærleiks- boðorðsins. Kærleikurinn verður sjálfur að finna þau orð og atlot, sem koma í veg fyrir þetta. Einnig hér eru verkefnin ærin. BoS- Orðið veitir engar sundurliðaðar leiðbeiningar. Það bendir aðeins á hjónabandið og makann og segir: „Hér, hér er náungi þinn. Elskaðu náunga þinn eins og sjálfan þig í þessum kringumstæð- ___U um. „Þú skalt ekki stela.“ Hér er ekki brugðið tiltekinni vörn fyrir eignarréttinn, þetta boðorð á ekki að skiljast sem grein í lands- lögum. Eign náunga míns er ekki aðeins það, sem hann hefur laga- legan rétt á. Ef þetta boðorð er „fólgið í“ kærleiksboðorðinu, á bann þess við allt, sem náungi minn þarfnast, einnig þótt það kunni að vera í minni eigu lagalega séð. Túlkað í ljósi kærleiks- boðorðsins hljóðar 7. boðorðið: „En sá, sem hefur heimsins gæði og sér bróður sinn vera þurfandi og afturlykur hjarta sínu fyrir honum, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum, (1. Jh .3, 17). Boðorðið lætur engar ákveðnar reglur í té, en það felur í sér fleiri verkefni en neinn af oss leysir. Það bendir blátt áfram á eign náungans, á það, sem hann þarfnast í þessu lífi, og /
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.