Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 41
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998
39
Mamma var
snillingur
Á þessum árum
komu mjög margir
Færeyingar til Islands
með okkur. Get ég
fullyrt að á þessum
árum hefði ekki verið
hægt að fullmanna
Ólafsvíkurflotann án
Færeyinganna, enda
var það þannig að á
hverjum bát voru
þeir þrír til fjórir. Þar
sem svo margir Fær-
eyingar dvöldu í
Ólafsvík þá var alltaf
mikill gestagangur á heimili oidt-
ar. í landlegum og helgarfríum var
setið við borð í hollum oft þrisvar
til fjórum sinnum og borðaður
færeyskur matur sem Maríanna
móðir mín var snillingur í að út-
búa. Mamma tók öllum vel og
skipti þá engu máli af hvaða þjóð-
erni menn voru, enda sagði hún
oft að “þar sem er hjartarúm, þar
er líka húsarúm”.
Maríanna og Karl Mortenssen.
Fyrsti dagurinn
Að lokum vil ég minnast fyrsta
dagsins í Ólafsvík, Eg var eins og
vanalega í fótbolta í garðinum fyr-
ir utan okkar fyrsta heimili sem
var í Vilborgarhúsi. Þá komu tveir
strákar og ein stelpa og gáfu sig á
tal við mig en þar sem ég skildi
ekkert gerðum við okkur skiljan-
leg með einskonar fingramáli.
Þessir fyrstu
vinir mínir
voru og eru
enn Flermann
Magnússon ,
Trausti bróðir
hans og Kristín
Guðmunds-
dóttir sem síðar
varð konan
mín. Eg vil að
lokum þakka
öllum íbúum
Ólafsvíkur fyrir
sérstakan hlý-
hug í garð
þeirra Færey-
inga sem til
Ólafsvíkur komu. Bestu sjó-
mannakveðjur til allra og megi al-
mættið halda verndarhendi yfir
öllum til sjós og lands.
Óska öllum
sveitungum mínum og sjómönnum til hamingju með daginn! Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu óskír í tilefni Sjómannadagsíns!
FISKBÚÐIN HAFRÚN Skipholt 70, Reykjavík Sími: 553 0003 ICEDAN H/F ÚTGERÐARVÖRUR Óseyrarbraut 4 • Hafnarfirði Sími: 565 3950 • fax: 565 3952
Magnús Sigurðsson