Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 23

Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 23
7.Stundum sakna ég þess að geta ekki notað lúpínuna oftar til vaxtarauka í hinni mögru jörð. Sendin skaftfellsk mýri er ekkert gósenland, þótt jarðraki sé nægur en gisin gróðurþekja hylur landið svo að ekki þýðir að sá lúpínu- fræi. Hér eru tvær aspir jafngamlar, gróðursettar í óhreyft land 15. júní 1997. Önnurfékk hefðþundna umönn- un, fimm áburðargjafir á þremur árum, en sú litla sem nær er á miðri mynd gleymdist í fyrstu sakir smæðar sinnar og var síðar höfð áburðarlaus til við- miðunar. Ösp sem fer áburðarlaus nið- ur í rýrt land getur lifað árum saman í svelti ef hún nær í vatn en vex ekki svo neinu nemur. Þessi smælingi fórað vaxa af sjálfsdáðum á sjötta ári! Sann- ast þar hið fornkveðna: „Þdð gerist nú ekhi mikid fyrstu fimm árin\“ áburð að auki, snöggtum meira en bændur uppi á Síðu bera á ræktunarland sitt. Hér þarf drjúga árlega áburðargjöf og aldrei dug- ar að slaka á. Þarna kom lúpína til sögunnar. Hún er af ertublómaætt eins og kunnugt er, en á rótum hennar myndast rótarhnúðar vegna hnýðisgerla er lifa í samlífi við plöntuna og binda köfnunarefni. Það lá beint við að kanna þetta úrræði og athuga hvort trjáplönt- ur gætu ekki þrifist í nábýli við lúpínu þótt venjulegur jarðvegur fyrirfyndist ekki, aðeins sandur og hraunmöl. Ég hafði sannreynt að birki þrffst furðanlega við erfiðar aðstæður í nábýli við lúpínu þeg- ar það vex upp af fræi en hin þunga hafátt velur því að það verður ljótt í vexti og hniprar sig niður, myndar sviplítinn kjarr- skóg. Sama máli gegndi um berg- furu. Þessar tegundir eru þar að auki seinvaxta og hafa ekki þrótt til að bjarga sér skjótt í annarri eins órækt, lúpínan vex upp yfir þær og sviptir þær sól og birtu. Hér þurfti þróttmiklar og skjót- vaxnar tegundir til að nýta að- stæður og rífa sig upp. Nú þurfti að þreifa fyrir sér. Fyrst var að sá lúpínufræi og sjá hvernig þetta færi með sig. Sveinn Runólfsson landgræðslu- 6. Þessi mynd sýnir hlutverk skógarþrasta í útivistarskóginum og gildi góðrar verslunar fyrir gróðurfar á landsbyggðinni. Ára- tugagamlir rifsberjarunnar eru heima við bæ og bera mikið af berjum á ári hverju. Rifsber voru jafnan tínd í ágústmánuði og búið til úr þeim hlaup. Nú fæst gott rifsberjahlaup á vægu verði í stórmörkuðum og þá situr skógarþrösturinn einn að þerjunum. Hann tínir þau í sig heima í garði og flýgur síðan í lúpínulandið þar sem hann heldur sig löng- um stundum. Þarskilarhann þeim með þeirri sáningu sem honum er eðlileg og auðgar þannig svæði sem áður voru gróður- laus. Þarspretta nú upp rifsþerjarunnar á víð og dreif í lúpínubreiðunni á svörtu hrauni. þessar tegundir þrifist í firaunmöl og svörtum sandi? Það var óhugsandi. Hraunmöl og sandur eru alsnauð og fram- fleyta engum gróðri fyrr en áfok hefur myndað allþykka jarðvegs- þekju á yfirborðinu. Áburðargjöf kom ekki til greina nema fyrstu árin vegna kostnaðar og fyrir- hafnar. Hér þurfti að stofna til sfálfbœrrar þróunartil þess að eyðisandar gætu breyst í útivist- arskóga á tiltölulega fáum árum með hóflegum tilkostnaði og fyr- irhöfn. Það var freistandi eins og áður að leita að hinni jákvæðu svörun, breyta auðn í útivistarskóg á tíu til fimmtán árum, laða skordýr og fugla að svæðinu, auðga vistkerf- ið svo um munaði. Ég var búinn að horfa á þetta eydda land ára- tugum saman og alltaf brann í huga mér hvernig hægt væri að klæða það grænum gróðri á ný. Vandinn var hins vegar sá að landið var ónýtt, það var svo rýrt að það var nánast eyðimörk, án teljandi gróðurs eða lífs af neinu tagi. Hér gerðist ekkert jákvætt nema þessi dauða jörð yrði gædd mikilli sjálfbœrri grósku. Nágrannar mínir rækta gras, annað grænfóður og korn á svip- uðu landi með býsna góðum ár- angri, en þeir bera búfjáráburð á landið á ári hverju, og tilbúinn SKÓGRÆKTARRiTIÐ 2003 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.