Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 26

Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 26
1 12.Það er auðveldast að hleypa upp aspar- skógi ef línur eru hreinar og landið er ann- aðhvort algerauðn, kjörin til lúpínuskóg- ræktar, eða hálfblaut mýri þarsem aðrar trjátegundir en ösp koma ekki til greina. Við slíkar aðstæður gengur ræktunin tiltölulega fljótt fyrir sig. Millistigið er langtum erfiðara - þurr sandfláki með þunnri jarðvegshulu sem erað mestu þakin vesældargróðri svo að lúpínan sáir sér seint út. Hér er dæmi um slíkt land sem fyllt var af ösp 2002. Gæsin braut á að giska 20% af plöntunum í fyrra- haust og er aftur komin á vettvang, en nú hefur gras vaxið upp af áburðargjöf kringum hverja plöntu og má því ætla að öspin sleppi við stóráföll af yfirgangi fugla. Vert er að geta þess að gæsin drepur sjaldnast plönturnar með þessum óskunda en seinkar vexti þeirra um tvö ár. Sumt er óútreiknanlegt í þessu dæmi. Lúpínan sáir sér til dæmis mishratt út á auðninni og getur þar munað tveimur til þremur árum þótt ekki sjáist teljandi munur á aðstæðum. Þessu þarf að gefa gaum vegna áburðargjaf- ar. Ef lúpínan sáir sér seint út á einhverju svæði þarf að kasta blákorni að öspinni árinu lengur til þess að hún standi ekki lengi í svelti. Síðustu árin hef ég fylgst náið með samspili lúpfnu og aspar og gefið gaum að því hvernig lágvax- in bakkaplantan bjargar sér í samkeppni við hina vaxtarhröðu og hávöxnu lúpínu. Hefur það !3.Hér sést hvernig álftavarp og vaxandi asparskógur eru að mynda eina heild. orðið kveikja að öðrum ræktunar- háttum sem spara áburðargjöf og fyrirhöfn svo um munar en skila óreglulegri skógi þegar frá lfður. Aðferð mín upp á síðkastið er að stinga bakkaplöntum niður f lúpínubreiðu á fimmta til sjötta ári, bera mjög hressilega á þær og snúa sfðan baki við þeim, enda týnast þær brátt f þykkninu. Ég veit af fenginni reynslu að þær munu vaxa upp úr lúpínubreið- unni eftir tvö ár blaðmiklar og gróskulegar. Þetta sparar áburð- argjöf og yfirferð af því að lúpfn- an er farin að gefa af sér mikinn lífmassa sem skilar köfnunarefni til bakkaplantnanna. Hið eina sem máli skiptir er að kasta svo miklu af blákorni að hinni ný- gróðursettu plöntu að hún ræti sig vel í sandinum eða hraunmöl- inni á fyrsta sumri. Þetta sýnist í rauninni fráleitt en árangur er satt að segja fram- ar öllum vonum. Aspir sem vaxa upp úr köfnunarefni lúpínubreið- unnar eru eðlilegar, blaðstórar og sællegar og skila oft ótrúlegum vexti þrátt fyrir afar þurrt um- hverfi. Nokkur munur virðist á því hve asparplöntur ná fljótt að nýta köfnunarefni lúpínunnar, getur munað einu eða tveimur árum, en allar komast þær á bragðið að lokum. Stóra spurningin í þessari til- raun var hve fljótt ætti að stinga bakkaplöntum niður í lúpínusán- ingu. Framan af hafði ég enga til- finningu fyrir því hve lúpínan sáði sér seint eða fljótt út. Beið ég því stundum óþarflega lengi með að stinga öspinni niður og varaði mig ekki á þvf að lúpfnan þarf aðeins eitt eða tvö hagstæð sum- ur til að loka landi sem aðeins var með strjálum lúpínutoppum skömmu áður. Þegar slíkt gerist geta einhverjar asparplöntur orð- ið undir í baráttu um birtu og rými og þær verða stundum grannar og teygðar meðan þær eru að brjótast upp úr lúpínu- þykkninu. Vaxtarlagið breytist þó og nær jafnvægi á næstu árum og vanhöld eru afar Iftil þegar rækt- unarmaður hefur náð valdi á verki sínu. Vorið 2003 var nokkrum bökk- um af Keisara stungið niður í svæði sem lúpínan hafði lokað að mestu. Ég hafði byrjað þessar ræktunartilraunir niðri í lægðum þar sem skýlt var og nokkur von til raka í jörðu og árangur orðið framar björtustu vonum. Nú var brugðið á annað ráð og plöntun- 24 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.