Skógræktarritið - 15.10.2003, Síða 57

Skógræktarritið - 15.10.2003, Síða 57
þar komið efni til að setjast nið- ur, lýsa staðnum og vekja athygli á honum. Fiská á upptök sín í fjalllendinu innan við Þríhyrning, en þar ber hæst Hæringsfell og Rauðnefs- staðafjall. Áin fellur til suðvest- urs niður með Þríhyrningi og tek- ur sveig til norðurs og vesturs með Vatnsdalsfjalli. Liggur áin undir fjallinu niður að Árgilsstöð- um og rennur þaðan út til Eystri- Rangár nokkru neðan við Tungu- foss (1. mynd). Að Fiská að norð- an liggur um 4000 ára gamalt hraun en sunnan árinnar er berggrunnur eldri og móberg rfkj- andi (Haukur lóhannesson og 3. mynd. Birkikjarrið á neðra hraunnefinu við Fiská, sjónarhorn upp með ánni til Þrí- hyrnings. 4. mynd. Birkikjarrið á neðra hraunnefinu við Fiská, sjónarhorn niður með ánni. Hér er birkið I - 2 m hátt með einstaka kalkvisti sem skaga upp úr því. Blómleggir geithvannar teygja sig upp í gegnum kjarrið. Var land með Fiská og Rangá þessu líkt á 10. öld er Gunnar á Hlíðarenda og bræður hans riðu hér um? Sigmundur Einarsson 1990). f landi Árgilsstaða, á milli Skútufoss og Bæjarfoss, fellur áin um hraunið og er þar alldjúpt gil með hamraveggjum. Hraunjaðarinn með ofanverðri ánni er víðast hvar vel fær mönnum og skepnum en á stöku stað eru brattir og illfærir hraunveggir sem áin rennur und- ir. Á einum þeirra er birkikjarrið við Fiská í landi Reynifells að finna. Birkið á Reynifelli er við ána þar sem hún rennur undir norðanverðu Vatnsdalsfjalli (1. mynd). Hraunkanturinn þar sem birkið vex er um 10-15 metra þykkur og veit á móti suðri. Yfirborð hrauns- ins er í um 130 m hæð yfir sjávarmáli. Birki finnst þarna á um 500 m löngu svæði með ánni, víðast hvar sem stakar hríslur og smáplöntur, en það þéttir sig þó í tveimur sundurslitnum kjarrblettum framan á hraunnefjum sem skaga út í ána (2. mynd). Á nefinu sem Iiggur neðar við ána er birkið þétt og vöxtulegt og meiri skógarblær á landinu en á efra nefinu þar sem birkið er gisnara og undir- gróður minni. Neðan við birkið er brattur og lítið gróinn hraunveggur en ofan við og á milli hraunnefjanna er hálfgróin mólendisbrekka. Þar sem birkið vex er halli á bilinu 30 - 50°. Á hrauninu ofan við brekkuna tekur við graslendismói með gulvíði. f hlfðum Vatnsdalsfjalls handan árinnar eru grasi grónar brekkur skornar af giljum. Gil þessi nefnast Hríslugil (1. mynd) og eru sagnir um að þar hafi vaxið birki (Örnefnastofnun, Helga Skúladóttir, óbirt handrit). Beggja vegna árinnar hafa verið bithagar sauðfjár fram á þennan dag og einhver hrossabeit. Á undanförnum árum hefur dregið úr beit á svæðinu og ber gróður þess merki að hann er í framför. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.