Skógræktarritið - 15.10.2003, Síða 75

Skógræktarritið - 15.10.2003, Síða 75
Hvammsskriða neðan við klettana sem mynda Deildarhjallann. Hríslurnar tvær eru merktar inn og er talið líklegt að sú sem er nær og til hægri á myndinni sé móðurhríslan. hlúa að henni með því að bera á hana og taka frá henni grjótið sem skreið niður og ógnaði til- veru hennar. Við Ingvar ákváðum að aka fram Vatnsdalinn að vestan og skoða hríslurnar með þvf að skyggnast fyrst þvert yfir dalinn. Þennan dag voru menn að reka fé heim eftir réttir og töfðumst við bæði vegna fjárrekstra og við að spjalla við kunningja. Vatnsdals- fjallið er mikið og margbreytilegt og utan í fjallinu, nokkuð utan við bæinn Hvamm, er mikill hamraveggur neðan við hjallann, sem Sigurður nefndi bara Hjalla, en mér sýnist að sé stundum nefndur Hvammshjalii en oftar Deildarhjalli. Næsti bær utan við Hvamm er Hjallaland og heitir ef- laust eftir þessum áberandi hjalla f Vatnsdalsfjalli. Hamra- veggurinn í Deildarhjalla vekur athygli, og Ágúst á Hofi segir frá því í ævisögu sinni1 er hann ein- hverju sinni fylgdi Guðmundi Friðjónssyni frá Sandi um Vatns- dal að skáldið gaf hjallanum þessa meitluðu einkunn: „Þetta er hallarstíll". Stuðlabergsskreytt- ur hamraveggurinn sem myndar hjallann er lfklega berggúll sem hefur storknað undir yfirborði jarðar sem veðrun hefur síðan berað. Tvær hríslur í Hvammsurð Þegar við horfðum þvert yfir dalinn í átt að Vatnsdalsfjalli sást Deildarhjalli greinilega nokkuð innar en hátindur Vatnsdalsfjalls, iörundarfell. Neðan Deildarhjall- ans eru þessir þverhníptu stuðla- bergshamrar og er Fossgilið áberandi norðantil en úr hömr- um og stuðlum Deildarhjallans hefur hrunið og hrynur enn grjót sem myndar afar miklar stórgrýt- isskriður niður undir þjóðveg. Skriðurnar eru mestar sunnan Fossgilsins. í þessum miklu skriðum greindum við tvo græna brúska, tvær hrfslur. Sú sem var nær fossinum var upp af grænum grasrinda í þessum annars gróð- urlausu skriðum, en hin svo sem 300 metrum sunnar og svolítið ofar, sunnan við gulan taum f skriðunni og án nokkurs sýnilegs gróðurs í nágrenninu. Við ókum fyrir Vatnsdalsbotn- inn og staðnæmdumst neðan við nyrðri hrísluna og gengum upp grasrindann í logni og síðdegis- sól. Það var fjölbreyttur gróður sem þarna óx, enda nýtur sfðdeg- issólar afar vel. f grasrótinni mátti greina ilmreyr, geithvönn, gulmöðru og hrútaberjalyng með þroskuðum berjum, en á milli steinanna í urðinni var algjörlega gróðurlaust, en þar var ótrúlega mikið af köngulóm sem biðu bráðar í vefjum sínum. Þetta reyndist auðveld ganga og þegar við nálguðumst hrfsluna sáum við að þetta var reyniviður. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003 73
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.