Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 110

Skógræktarritið - 15.10.2003, Page 110
MINNING Garðar Jónsson skógarvörður F. 22.nóvember 1919 • D. 25.október 2003. Garðar lónsson, sem nú er látinn í hárri elli, var af annarri kynslóð skógarvarða Skógræktar ríkisins. Hann lifði tímana tvenna í skógræktinni. Þegar hann hóf að starfa við hana kornungur maður var hún atvinna örfárra með fámennan hóp hugsjónamanna að baki sér. Þegar hann féll frá var skógrækt orðin atvinnuvegur hundraða bænda um allt land og yndisönn enn fleiri manna í nær öllum bæjum og þorpum íslands. Garðar var einn þeirra sem lögðu grunninn að þessum miklu umskiptum. Garðar stundaði nám við Flensborgarskólann í Hafnar- firði 1934-1936 og við Bændaskólann á Hólum 1936- 1937, og brautskráðist þaðan sem búfræðingur. Eftir það vann hann sem lærlingur í skógrækt f Danmörku. Sumarið 1939 vann hann ásamt Einari G. E. Sæmundsen í gróðrarstöðinni f Alstahaug á eyjunni Álöst á Háloga- landi f Noregi hjá afburðaduglegum og frægum gróðrar- stöðvarstjóra. Sumarið 1940 vann hann um tfma í gróðr- arstöð Skógræktarinnar á Hallormsstað. Á næstu árum var hann við ýmis störf hjá Skógrækt ríkisins, m.a. oft fylgdarmaður Hákonar Bjarnasonar. Ætlunin hafði verið, að Garðar og Einar Sæm. færu á skógskóla í Noregi, en strfðið kom f veg fyrir það. Tók Hákon Bjarnason þá það ráð að kenna þeim skógræktar- fræði á veturna og brautskráði þá með réttindum til skógarvarðastarfs. Garðar var skipaður skógarvörður á Suðurlandi 1944, annar í röðinni þar eftir Einari G. E. Sæmundsen, sem hafði haft starfið á hendi frá 1910. Gegndi Garðar skóg- arvarðarstarfinu til 1986, er hann lét af því fyrir aldurs sakir. Fyrsta verkefni Garðars sem skógarvarðar var að stofn- setja gróðrarstöð á Tumastöðum í Fljótshlíð 1944. Það var ekki hrist fram úr erminni f einu vetfangi. Þarna var fyrir mýri, sem þurfti að ræsa fram, áður en hægt væri að brjóta landið. Það var gert 1944 og 1945. íbúðarhús skógarvarðar, verkstæðishús og verkfærageymsla voru reist 1946. Gróðurhús var reist 1947, sem var nýjung f skógplönturæktun á íslandi. Vatnsaflsrafstöð var reist 1948 og sama ár og 1949 verkafólksbústaður fyrir 20 manns. 1951-1952 kæligeymsla fyrir plöntur. Árin 1947 og 1948 var sáð í gróðurhúsið og 1950 voru dreifsettar nær 600 þús. plöntur. Þar með var ræktunin komin á fullt skrið. Hér er þetta allt tíundað til þess að sýna, að það var í nógu að snúast fyrir hinn unga skógarvörð þessi fyrstu ár á Tumastöðum. Og ekki minna þegar ræktunin var fullmótuð. Nú kom sér vel reynslan, sem Garðar fékk f Alstahaug. Það var enginn hægðarleikur að reka plöntuuppeldi þarna á berangrinum f hinni rysjóttu vetrarveðráttu. Enda sáu þeir Hákon Bjarnason og Garðar strax, að ríða yrði þétt net skjólbelta um græðireitina. Þetta skjól- beltanet var gróðursett á árunum 1948-1954. Þá var lengd skjólbeltanna orðin 2 km og voru þá hin mestu á íslandi. Samhliða þessu risaverkefni að koma upp gróðrar- stöðinni sá Garðar svo um þjóðskógana f umdæmi sínu. Fyrstu árin var það einkum Þórsmörk og Goðaland sem Skógrækt ríkisins tók við 1927. Mikið verkefni og erfitt, af því að hin 17 km langa girðing um svæðið lá vfðast um fjöll og firnindi. Ég fann fljótt við kynni af Garðari og fjölskyldu hans, hve miklu ástfóstri þau tóku við þetta tilkomumikla svæði. Árið 1938 hafði Skógrækt ríkisins keypt Skriðufell f Þjórsárdal. Þá var girt um þetta mikla land hvorki meira né minna en 33 km löng girðing, sem mikið verk var að halda við. Sfðar keypti Skógræktin næstu jörð, Ásólfs- staði, og bættist þá enn við girðingar, sem að hluta lágu á fjöllum. Árið 1949 hófst gróðursetning í Þjórsárdal og næstu áratugina var á þessum jörðum meginverkefni Garðars í nýrækt skógar. Auk þessara tveggja þjóðskóga kom sá þriðji í hlut Garðars að sjá um: Hið yndislega svæði Skarfanes í 108 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003 Landsveit. Síðan Laugarvatn, sem skólarnir þar fólu Skógrækt ríkisins umsjón með. Loks var Garðari fal- in umsjón með þjóðskóginum f Haukadal frá öndverðu ári 1969 eft- ir hið sviplega fráfall vinar hans, Einars Sæm. Ég hygg nú, að af þjóðskógunum hafi Garðar og Móeiður kona hans bundið mesta tryggð við Þjórsárdal- inn, enda fádæma náttúrufegurð þar með Heklu sjálfa f nærsýn og ein- staklega ljúfa veðráttu. Égheyrði þau oft dásama veðráttuna þarna uppfrá og bera saman við hina rysj- óttu veðráttu í lágsveitunum. Við Garðar vorum samstarfs- menn í rúma þrjá áratugi og áttum mikil samskipti, þótt við sætum sinn á hvoru landshorni. Alltaf voru það samskipti eins og best verður á kosið. Nokkrum sinnum átti ég þess kost að fara með hon- um og skoða helstu athafnasvæði í umdæmi hans, og njóta um leið fegurðar Suðurlands, enda staðir eins og Þjórsárdalur og Þórs- mörk/Goðaland með fegurstu stöð- um á íslandi. Minnisstæðust þessara ferða með Garðari held ég hafi verið, þegar hann sýndi mér Þórs- mörk/Goðaland f fyrsta sinn. Hann gerþekkti þetta undraland og ég fann, hverja tilfinningu hann bar til þess. Það var auðvitað óskaplega gam- an fyrir mig að skoða með honum alla þessa staði á Suðurlandi, sem hann sá um. Um þá miðlaði hann fróðleik á þann notalega hátt, sem var svo einkennandi fyrir hann. Garðar hafði til að bera fínan húmor, sem gæddi alla frásögn hans lffi. Og það var aldrei asi á honum, heldur jafnvægi og ein- kennileg ró, sem olli því, að manni leið vel f návist hans. Slfkt má svo sannarlega telja til góðra mann- kosta. Sigurður Blöndal SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.