Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 4

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 4
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta 4 .. ral communities benefit from amalgamation or become more deprived in centre-periphery comparisons. Regression analyses were performed on data from surveys conducted in 2016, 2017, and 2020. Findings revealed that rural residents of mixed municipalities and residents of purely rural municipalities reported similar satisfaction. However, greater variance in the responses of residents in purely rural municipalities indicated more internal variability. When specific aspects of municipal services were ex- amined, a clear pattern emerged: Residents of purely rural municipalities were significantly less satisfied with planning, social services, opportuni- ties for sports and leisure, and the quality of youth services. Residents of purely rural municipalities were generally more satisfied with their mu- nicipal services if they did not operate their own schools, while rural mu- nicipalities that did, showed greater dissatisfaction among residents with various other municipal services. It is important that these results are pre- sented to residents of purely rural municipalities. KEYWORDS: Municipal amalgamations – Municipal services – Rural areas – Urban areas – Consumers Inngangur Sameiningar sveitarfélaga hafa mikið verið ræddar og rannsakaðar hérlendis sem erlendis. Fræði- lega séð ætti að vera stærðarhagkvæmni í rekstri sveitarfélaga eins og gildir um rekstur almennt þar sem um er að ræða t.d. sérhæfingu og leggja þarf í miklar fjárfestingar (Boyes og Melvin, 1999) og í tilfelli hins opinbera, t.d. slökkvilið og bókasöfn (Rosen og Gayer, 2008). Það ætti að fela í sér lægri kostnað við veitingu þjónustunnar og samkvæmt Palander (1935) ætti því að vera hægt að veita hana víðar og dreifðar eða betri þjónustu til sama landsvæðis. Ísland er hins vegar stórt og dreifbýlt land og hafa ólík sjónarmið verið uppi um sameiningar fámennustu sveitarfélaganna í dreifbýli við stærri sveitarfélög sem búa yfir þéttbýliskjarna. Í stuttu máli má segja að áhyggjur og efasemdir margra snúist um að dreifbýlið verði út undan í sameinuðum sveitarfélögum (Grétar Þór Eyþórsson, 2012). Dæmi má taka af nokkrum kosningum um sameiningu sveitarfélaga þar sem tillagan fellur á atkvæðum dreifbýlisins; eins og nýafstaðin kosning Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps (sjá Sameining felld á Snæfellsnesi, 2022), nokkrar kosningar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, auk kosninga um sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. Er það svo að íbúar svo fámennra sveitarfélaga fari illa út úr sameiningum við þau fjölmennari? Hér er ætlunin að reyna að leggja mat á þetta álitamál með því að svara rannsóknarspurningunni: Eru íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga ánægðari með sveitarfélagið sitt og veigamikla þjónustu þess en íbúar dreif- býlis í blönduðum sveitarfélögum (sveitarfélög dreifbýlis- og þéttbýlissamfélaga)? Nýleg rannsókn hérlendis sýndi fram á að sameiningar sveitarfélaga hafi skilað árangri (Vífill Karlsson og Grétar Þór Eyþórsson, 2022). Þau áhrif mældust í öllum tilfellum en eingöngu töl- fræðilega marktækt í tilfelli sameininga þriggja eða fleiri sveitarfélaga. Ekki var greint á milli hvort sameiningarnar skiluðu sér í betri þjónustu, lægri kostnaði eða sköttum. Hins vegar náði greiningin ekki til fámennustu sveitarfélaganna og var það tilefni rannsóknarinnar sem hér er gerð. Á Ís- landi hefur efling sveitarstjórnarstigsins fyrst og fremst farið fram með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga, svo það er mikilvægt að sveitarfélögin geti staðið undir þeirri auknu kröfu (Grétar Þór Eyþórsson, 2012). Hér verður því gerð tilraun til að skoða hvort íbúar í dreifbýli sveitarfélaga með sterkan þjónustukjarna séu ánægðari eða óánægðari en íbúar í hreinum dreifbýlissveitarfélögum. Það ætti að gefa vísbendingu um það hvort hrein dreifbýlissamfélög komi betur út í sveitarfélagi þar sem þau ráða sjálf ríkjum í stað þess að deila stjórn samfélagsins með stóru þéttbýli. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu gefið sterkar vísbendingar um það hvort sameining hreinna dreifbýlissveitar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.