Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 5
Bjarki Þór Grönfeldt og Vífill Karlsson
5 ..
félaga við stærri sveitarfélög með þéttbýliskjarna sé þeim hagfelld og mikilvægt leiðarstef fyrir þau
sem hugleiða sameiningar á næstunni.
Greinin er þannig uppbyggð að næst verður sagt frá fyrri rannsóknum á þessu sviði og þá verða
gögnin og rannsóknaraðferð útskýrð. Að lokum verður sagt frá niðurstöðum greiningarinnar sem
fylgt verður eftir með umræðum og niðurlagi.
Fyrri rannsóknir
Í inngangi var vísað til stærðarhagkvæmni og þess að ef hún væri til staðar í rekstri sveitarfélaga
væri hægt að veita þjónustu víðar í kjölfar sameiningar eða bæta hana á sama landsvæði, einkum ef
hún er einsleit (sú sama gagnvart íbúunum eins og opinber þjónusta á að vera). Þetta er mat McCann
(2001) á líkönum sem upphaflega má rekja til Hotelling (1929) og Palander (1935) en jafnvel þó svo
kenningin hverfist um fyrirtæki og vilja þeirra til að staðsetja sig og veita þjónustu landfræðilega
má yfirfæra þetta á óhagnaðardrifinn þjónustuveitanda eins og sveitarfélag. Stærð stjórnsýslueininga
og hagkvæmni þeirra er klassískt deiluefni, og má segja að forngríski heimspekingurinn Plató hafi
verið fyrsti talsmaður sameininga sveitarfélaga, en að hans mati var hagkvæmasti mögulegi mann-
fjöldi borgríkis nákvæmlega 5.040 borgarar (auk kvenna, barna og þræla). Þann fjölda mat hann til
þess fallinn að stuðla að skilvirkri stjórnsýslu, auk þess sem að honum þótti talan 5.040 áhugaverð
frá stærðfræðilegu sjónarhorni (sem verður ekki rakið hér en sjá Jowlett, 1986). Aristóteles tók ekki
í sama streng og lærifaðir hans og lagði frekar áherslu á að borgararnir þekktust sín á milli og skildu
þarfir og langanir hvor annars, en það skipti ekki öllu máli hve margir þeir væru (Aristotle, 1992).
Að mörgu leyti má segja að nú, meira en tvö þúsund árum síðar, séu deilur um stærð og gerð sveitar-
félaga enn dregnar eftir þessum víglínum.
Það er hægara sagt en gert að meta árangur sameininga sveitarfélaga heildrænt, en ýmsar rann-
sóknir hafa verið gerðar hérlendis á árangri eða árangursleysi sameininga sveitarfélaga. Rekstrar-
kostnaður fjölmennari sveitarfélaga á Íslandi er almennt lægri per íbúa en minni sveitarfélaga (Vífill
Karlsson og Elías Árni Jónsson, 2011), en þó virðast sameiningar einar og sér ekki endilega leiða til
mikils sparnaðar í rekstri (Vífill Karlsson, 2015). Fasteignaverð hækkar gjarnan í kjölfar sameininga
(Vífill Karlsson og Grétar Þór Eyþórsson, 2022), sem túlka má sem vísbendingu um að þau séu þar
af leiðandi eftirsóknarverðari búsetuvalkostur en fyrir sameiningu. Galli er þó á gjöf Njarðar. Íslensk
rannsókn birt árið 2002 í kjölfar stórra sameininga á árunum 1994-1998 leiddi í ljós að íbúar á jaðar-
svæðum í nýjum sveitarfélögum töldu halla á sitt svæði lýðræðislega í kjölfar sameiningar (Grétar
Þór Eyþórsson og Hjalti Jóhannesson, 2002). Vald hefði samþjappast um of í þjónustu- og stjórn-
sýslukjörnunum. Var þetta helst skoðun íbúa í stærri jaðarbyggðum (t.d. þorpum) sem voru fjarlæg
hinni nýju miðju. Hins vegar sýndi sama rannsókn (og fleiri, nýlegri rannsóknir, t.d. Vífill Karls-
son og Grétar Þór Eyþórsson, 2022) að mælingar á þjónustustigi íbúa hefðu batnað, þó skynjun
íbúa á gæðum þjónustunnar hefði ekki endurspeglað þá þróun. Þá er vert að nefna skoðanakönnun
sem gerð var árið 2013 á átta nýloknum sameiningum (Vífill Karlsson og Torfi Jóhannesson, 2014;
Grétar Þór Eyþórsson og Vífill Karlsson, 2018). Þar kom fram að íbúar og sveitarstjórnarmenn á
jaðri sameinaðs sveitarfélags væru nánast alltaf óánægðari með þjónustu síns sveitarfélags en þeir
sem byggju nær þjónustukjarnanum. Það var hins vegar aldrei dregið fram hvort þeir væru ánægðari
eftir sameininguna en fyrir hana. Lausleg rýni benti til að svo hefði verið og það í mörgum mjög
mikilvægum þjónustuliðum og útgjaldafrekum – einkum þeirra er tengjast þjónustu við börn. Hér
má einnig nefna rannsókn þeirra Karls Benediktssonar og Hjalta Nielsen (2008) þar sem þeir reyndu
að meta áhrif búferlaflutninga á ýmsa þjónustu í byggðarlögum sem tapað höfðu íbúum og þar kom
m.a. fram að þjónustustig væri mjög háð íbúafjölda.
Í nýbirtri rannsókn (Vífill Karlsson, 2023) þar sem Dalabyggð var borin saman við sambærilegt
sveitarfélag, Húnaþing vestra, auk fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, kom í ljós að
íbúar í dreifbýli Húnaþings vestra eru óánægðari með sitt sveitarfélag en þeir sem búa í þéttbýli þess