Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 14

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 14
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta 14 .. Tafla 6. Niðurstöður þátta er tengjast fræðslu-, uppeldis, íþrótta- og æskulýðsmálum Skýribreytur (Líkan 10) Grunnskóli (Líkan 11) Leikskóli (Líkan 12) Tónlistarskóli (Líkan 13) Íþróttir (Líkan 14) Unglingastarf Aldur 1,65 (3,54)*** 1,71 (3,79)*** 1,55 (3,07)** 1,20 (1,35) 1,02 (0,12) Börn á heimili 1,49 (4,21)*** 1,50 (4,24)*** 1,39 (3,45)*** 1,14 (1,45) 0,99 (-0,06) Býr einn/ein/eitt 0,88 (-0,95) 0,84 (-1,30) 0,92 (-0,65) 0,81 (-1,62) 0,96 (-0,28) Íbúar 0,96 (-0,78) 0,99 (-0,12) 1,35 (5,95)*** 1,30 (5,64)*** 0,98 (-0,33) Kyn (karl = 1) 0,91 (-1,14) 0,95 (-0,60) 0,87 (-1,65)* 1,08 (0,92) 1,15 (1,60) Menntunarstig 1,13 (5,03)*** 1,10 (3,79)*** 1,08 (3,19)*** 1,05 (2,33)** 1,06 (2,31)** Uppruni (erlendur =1) 0,79 (-1,36) 0,70 (-2,03)** 0,46 (-4,40)*** 0,87 (-0,84) 0,93 (-0,42) Árið 2020 1,22 (2,37)** 1,50 (4,81)*** 1,23 (2,52)** 1,19 (2,16)** 1,38 (3,78)*** Hrein sveit 1,09 (0,59) 1,05 (0,33) 1,47 (2,50)** 0,69 (-2,48)** 0,61 (-3,17)** Fjöldi athugana 2082 2062 2095 2195 2007 LR-próf, chi2 76,10*** 89,85*** 100,66*** 104,01*** 38,90*** Pseudo R2 0,0142 0,0173 0,0184 0,0171 0,0075 T-prófb) 0,036 a) 0,002 a) <0,001 a) <0,001 a) <0,001 Mann-Whitneyb) 0,131 0,003 <0,001 <0,001 <0,001 Raðkvarðalíkani var beitt og gögnin eru frá 2016, 2017 og 2020. Stuðlarnir eru líkindahlutfall (e. odds ratio) og í sviga eru z-gildi. * stenst 10% marktektarkröfu, ** stenst 5% marktektarkröfu, *** stenst 1% marktektarkröfu. Til hliðsjónar var Mann-Whitney og T-próf líka framkvæmd til að sjá hvort það staðfesti mun á afstöðu þessara tveggja samfélaga sem til skoðunar voru en einnig framkvæmt Levene‘s próf fyrir dreifni í mati á gæðum þáttanna milli samfélaganna. a) Levene‘s próf er marktækt (p < ,05), ögrar forsendunni um einsleita dreifni b) p-gildi notuð. LR (e. likelihood ratio) er próf á líkanið í heild sambærilegt F-gilda prófi í línulegri aðhvarfsgreiningu og hér er birt kíkvaðratgildi. Þá hefur verið fjallað um þær niðurstöður sem voru höfundum sérstaklega hugleiknar við vinnslu þessarar rannsóknar. Margt annað er þarna áhugavert og tengist viðfangsefninu. Ef við skoðum fyrst afstöðu íbúanna til sveitarfélagsins almennt þá voru eldri íbúar ánægðari með sveitarfélagið sitt en þeir yngri. Því menntaðri sem íbúar voru, því ánægðari voru þeir með sveitarfélagið. Þá var ánægjan meiri í fámennari sveitarfélögum en fjölmennari árið 2020 en 2016 og 2017. Þegar kom að skipulagsmálum, ásýnd og sorpmálum kom í ljós að ánægja með þá þætti var meiri meðal fámennari sveitarfélaga en fjölmennari. Hins vegar voru yngri íbúar ánægðari með ásýnd á meðan þeir eldri voru ánægðari með sorpmál. Hins vegar voru innflytjendur ánægðir með bæði ásýnd og sorpmál. Svo voru þeir sem bjuggu einir óánægðari með sorpmálin. Ef við skoðum aðrar niðurstöður sem tengjast félagsþjónustu sérstaklega kom fram að innflytj- endur voru óánægðari en Íslendingar með þrjá af fimm þáttum: Þjónustu við aldraða, þjónustu við fólk í fjárhagsvanda og innflytjendur. Þátttakendur voru samt ánægðari með alla þessa þætti 2020 en árin 2016 og 2017. Menntafólk og konur voru líka óánægðari með þjónustu við innflytjendur en karlar og minna menntað fólk. Meiri ánægja var með dvalarheimili og þjónustu við fatlaða í fjöl- mennari sveitarfélögum en því var öfugt farið gagnvart þjónustu við fólk í fjárhagsvanda. Ánægja var meiri meðal eldra fólks þegar kom að þjónustu við aldraða, dvalarheimili, en þessu var öfugt farið er varðar þjónustu við innflytjendur. Að lokum skal greint frá niðurstöðum greininganna á þáttum sem tengjast fræðslu-, uppeldis-, íþrótta- og æskulýðsmálum. Jákvæð fylgni er á milli aldurs og skólagerðanna þriggja (leik-, grunn- og tónlistarskóla), hvort það eru börn á heimili og menntunar þátttakenda (í árum talið). Þá var ánægja með skólana marktækt meiri á Covid-árinu 2020 en árin 2016 og 2017. Hins vegar voru innflytjendur mun óánægðari með leik- og grunnskóla en Íslendingar. Þegar kom að tækifærum til íþróttaiðkunar og tómstunda ásamt unglingastarfi var minna um að stöku hópar skæru sig úr varð- andi ánægju með þá. Það helsta var að langskólagengnir voru ánægðari með báða þessa þætti en þeir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.