Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 16
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta
16 ..
öðrum tilvikum voru bæði mörk öryggisbilsins fyrir neðan. Af þessu má ætla að jákvæðni sé alltaf eða
oftar meiri í garð þjónustu blandaðra en hreinna dreifbýlissveitarfélaga þar sem dreifnin stóðst ekki
Levene‘s prófið. Hér er samt sem áður eitthvað óútskýrt sem þarfnast frekari greiningar. Er seinni
hluti þessa kafla tileinkaður nýjum tilgátum sem urðu til við vinnslu á ofangreindum niðurstöðum.
Tvær tilgátur komu fram um hugsanlegar skýringar á misdreifninni. Sú fyrri gekk út á að rekja
mætti mikla breidd í ánægju með þjónustu hreinna dreifbýlissveitarfélaga til þess hvort þau rækju
sína eigin grunnskóla og leikskóla sjálf eða keyptu þá þjónustu af öðrum sveitarfélögum. Ekki er
alveg víst hvor staðan væri betri gagnvart íbúunum. Annaðhvort væri rekstur á eigin skólum betri
vegna nálægðar sveitarfélagsins við íbúana þannig að íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem rækju
sína eigin skóla væru mun ánægðari með rekstur skóla sinna en íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga
sem gerðu það ekki. Eða að skólar í eigin rekstri hafi reynst fámennu sveitarfélögunum fjárhagslega
ofviða þannig að sveitarfélagið væri í vandræðum með skólareksturinn og jafnvel vanrækti önnur
skylduverkefni af þeim sökum. Það hafi gert íbúa hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem ráku sína skóla
óánægðari með skólann og ýmsa aðra þjónustu en íbúa hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem keypt
hafa skólaþjónustu af öðrum sveitarfélögum.
Seinni tilgátan gekk út frá því að þessa misdreifni mætti rekja til sértekjusveitarfélaga á þann
hátt að þau hefðu óvenju miklar tekjur (hlutfallslega) af stórum eignum eins og virkjunum, stórum
verksmiðjum, flugvöllum eða mörgum sumarhúsum. Tilgátan gengur því út á það að sértekjusveitar-
félög séu fjárhagslega sterkari en önnur hrein dreifbýlissveitarfélög og geti því gert betur við íbúa
sína bæði hvað skólarekstur snertir og ýmsa aðra þjónustu. Þess vegna séu íbúar hreinna dreifbýlis-
sveitarfélaga sem flokkast líka sem sértekjusveitarfélög ánægðari með þjónustu síns sveitarfélags en
íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem ekki flokkast sem sértekjusveitarfélög.
Hannaðar voru sérstakar leppbreytur til að leita vísbendinga um þetta tvennt. Yfirlit yfir þau
sveitarfélög sem ráku eigin grunn- og leikskóla viðkomandi ár er að finna í viðauka og þar kemur
fram hvort þau hafi haft óvenju sterka tekjustofna vegna tiltekinnar og einskærrar sérstöðu af því tagi
sem tekin voru dæmi hér um framar (sértekjusveitarfélög). Óháðu breytunni „hrein sveit“ var því
skipt upp í þrennt: 1) hrein dreifbýlissveitarfélög sem ekki ráku eigin grunn- og leikskóla (DSES), 2)
hrein dreifbýlissveitarfélög sem höfðu sértekjur og ráku sína eigin skóla (DSST), 3) hrein dreifbýlis-
sveitarfélög sem höfðu sértekjur og ráku ekki sína eigin skóla (DSSTES). Til að gæta samræmis var
tveimur breytum bætt við en það voru blönduð sveitarfélög sem ráku ekki sína eigin skóla (BSES)
og blönduð sértekjusveitarfélög (BSST). Ekki var dæmi um að blandað sértekjusveitarfélag ræki
ekki sína skóla og því var BSSTES ekki til. Í viðauka er síðan að finna fjölda sveitarfélaga í hverri
þessara breyta (Tafla 12) og í lýsandi tölfræði má greina fjölda svara þar undir (Tafla 2). Af því má
sjá að fara verður varlega með þessar niðurstöður en próf staðfestu samt að það dró umtalsvert úr
misdreifni og skýringarnar því að hluta til fundnar.
Þegar raðkvarðalíkanið var keyrt með þessum nýju leppbreytum, sem drógu út þau hreinu dreif-
býlissveitarfélög sem ekki ráku eigin grunn- og leikskóla (DSES), gagnvart almennu viðhorfi íbú-
anna til eigin sveitarfélags (Líkan 15, Tafla 7) kom í ljós að þar var sterk marktæk fylgni1. Stuðullinn
var bæði hærri og marktækari í líkani 15 en líkani 1. Óánægja íbúanna var því meiri í hreinum
dreifbýlissveitarfélögum sem ráku sína eigin leikskóla og/eða grunnskóla en í þeim sem ekki voru í
slíkum rekstri. Einnig kom fram að íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem höfðu sértekjur og ráku
sína eigin skóla (DSST) voru marktækt óánægðari en íbúar þeirra sem ekki gerðu það (DSSTES).
Þarna virðast þessar viðbótartekjur því ekki duga þeim til að skapa sér vinsældir. Hærra kíkvaðrat-
gildi LR-prófsins benti til að þetta líkan væri betra en það fyrra. Af þessum sökum þótti ástæða til að
keyra öll líkönin (Líkön 2-14) upp á nýtt með þessum leppbreytum til að rekja hvaðan þessi óánægja
kæmi (sjá nýjar greiningar í líkönum 15-28 í töflum 7-9).
Verður hér fjallað um niðurstöður sem koma fram í töflum 7-9. Athygli vekur að sértekjusveitar-
félög í hópi hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem reka sína eigin skóla er eini flokkur sveitarfélaga