Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 19

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 19
Bjarki Þór Grönfeldt og Vífill Karlsson 19 .. Athygli vekur að niðurstöður í seinni útgáfu líkananna (Töflur 7-9) voru mjög áþekkar þeim sem fengust í fyrri keyrslunum (Töflur 4-6) gagnvart þeim breytum sem voru sameiginlegar á milli þeirra og er það ein vísbending fyrir áreiðanleika niðurstaðnanna. Fjögur frávik fundust. Í fyrsta lagi hafði verið veik neikvæð fylgni á milli fjölda íbúa og ásýndar (Líkan 3) sem var horfin í seinni keyrslunni (Líkan 17). Í öðru lagi var einnig veik neikvæð fylgni á milli uppruna og þjónustu við aldraða (Líkan 5) sem horfin var í seinni keyrslunni (Líkan 19). Í þriðja lagi voru þeir sem bjuggu einir almennt óá- nægðari með möguleika til íþróttaiðkunnar í seinni keyrslunni (Líkan 27) sem ekki mældist í þeirri fyrri (Líkan 13). Að lokum voru konur óánægðari en karlar með tónlistarskóla (Líkan 12) en sú fylgni mældist ekki í seinni keyrslunni (Líkan 26). Umræða Viðfangsefni þessarar greinar var að kanna hvort munur væri á ánægju íbúa hreinna dreifbýlissveit- arfélaga annars vegar og íbúa í dreifbýli blandaðra sveitarfélaga hins vegar með þjónustu sveitar- félagsins. Samandregið er niðurstaðan sú að íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga voru óánægðari með sjö þjónustuþætti sveitarfélaga af þeim þrettán sem horft var til. Það voru fjórir þættir sem falla undir félagsþjónustu; þjónustu við aldraða, dvalarheimili, aðstoð við fólk í fjárhagsvanda og þjón- ustu við innflytjendur, tveir sem flokkast undir fræðslu-, uppeldis, íþrótta- og æskulýðsmál; tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar og gæði unglingastarfs og að lokum skipulagsmál. Hins vegar voru íbúar þessara sveitarfélaga ánægðari með tónlistarskólann og engan annan þátt. Þetta voru fyrstu niðurstöður greininganna sem kynntar voru í niðurstöðukafla. Niðurstöðurnar benda því til þess að hrein dreifbýlissveitarfélög kæmu betur út sem blandað sveitarfélög t.d. í kjölfar sameiningar og er það eitt af framlögum þessarar greinar. Segja má að helsta framlag þessarar greinar, bæði fræðilegt en einnig til almennrar umræðu um sveitarstjórnarmál, séu seinni tölfræðigreiningar sem kynntar voru í niðurstöðukafla. Í þeim var ánægja íbúa greind eftir tveimur sérkennum: Hvort viðkomandi sveitarfélag rak eigin grunnskóla eða keypti þjónustuna af öðru sveitarfélagi, og hvort viðkomandi sveitarfélag hafði sértekjur eða ekki (sértekjur eru t.d. tekjur af stórum eignum eins og virkjunum, stórum verksmiðjum eða mörgum sumarhúsum). Hugmyndin að þessum greiningum kviknaði þegar kom í ljós að enginn marktækur munur var á milli íbúa hreinna dreifbýlissveitarfélaga og íbúa í dreifbýli blandaðra sveitarfélaga þegar spurt var um hvort þeir væru almennt neikvæðir eða jákvæðir í garð síns sveitarfélags. Höf- undar veittu því þó eftirtekt að meiri dreifing var í svörum íbúa hreinna dreifbýlissveitarfélaga. Var því gerð frekari greining til að komast að því í hverju aukin dreifing gæti legið. Í ljós kom að óánægja íbúa var meiri í hreinum dreifbýlissveitarfélögum sem ráku sína eigin leikskóla og/eða grunnskóla en í þeim sem ekki voru í slíkum rekstri. Enn fremur kom fram að íbúar hreinna dreif- býlissveitarfélaga sem höfðu sértekjur og ráku sína eigin skóla voru marktækt óánægðari en íbúar þeirra sem ekki gerðu það. Sértekjurnar virðast því ekki duga til þess að auka ánægju íbúa. Séu niðurstöður um ánægju með skólastarf dregnar saman má segja að heilt yfir virðist það vera þannig að íbúar séu jafn ánægðir með skólana hvort sem þeir eru reknir af þeirra sveitarfélagi eða öðru sveitarfélagi. Mögulegt er að þessi rekstur sé hins vegar svo dýr í samanburði við það sem þeir eru að borga öðru sveitarfélagi fyrir menntun barna sinna að það bitni á annarri þjónustu (sbr. verri niðurstöður í öðrum þáttum). Þetta ætti að vera nokkuð rökrétt þar sem fámenn sveitarfélög eru annað hvort að greiða meðalkostnað á nemanda eða jaðarkostnað (viðbótarkostnað) og hann er alltaf lægri í fjölmennari skóla en fámennum ef þar nýtur við stærðarhagkvæmni. Hér eru því sterkar vísbendingar fyrir því í hverju misdreifnin liggur í svörum íbúa hreinna dreifbýlissveitarfélaga. Því má segja að ef hrein dreifbýlissveitarfélög væru að reka sína skóla sjálf eins og lög kveða á um þá væri óánægja almennt mun meiri og víðtækari í flestum þjónustuþáttum en hjá íbúum í dreifbýli blandaðra sveitarfélaga en fyrstu niðurstöður kváðu á um. Þær niðurstöður sem hér hafa verið kynntar koma ekki alfarið á óvart og samhljómur er við rann- sóknir á sameiningum sveitarfélaga á Íslandi. Í gögnum frá 2013 (Grétar Þór Eyþórsson og Vífill Karlsson, 2018) úr rannsókn sem var gerð á þá nýliðnum átta sameiningum kom ýmislegt sambæri-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.