Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 20

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 20
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta 20 .. legt í ljós. Flestar voru þær sameiningar lítilla og stórra sveitarfélaga nema í Fjallabyggð þar sem Siglufjarðarkaupstaður og Ólafsfjarðarbær sameinuðust en þau komust næst því af þessum átta að vera áþekk sveitarfélög fyrir sameiningu. Þátttakendur voru því flokkaðir þar í þá sem tilheyrðu minni sveitarfélögum viðkomandi sameininga og hina sem tilheyrðu stærri sveitarfélögum samein- inganna. Fyrst voru þátttakendur beðnir um að taka afstöðu til eftirfarandi fullyrðingar: „Mér finnst þjónusta sveitarfélagsins hafa almennt batnað eftir að hið sameinaða sveitarfélag varð til“. 36% þátt- takenda voru ósammála þessu en 15% sammála. Næst voru þátttakendur spurðir: „Að hve miklu eða litlu leyti telur þú neðantalda þjónustu eða starfsemi sveitarfélagsins hafa batnað eða versnað í kjöl- far sameininga (-r)“ og þeir beðnir um að meta 32 þætti. Einungis 12 þeirra voru taldir hafa versnað og fjórir þeirra vörðuðu ekki þjónustu sveitarfélagsins heldur lýðræðisleg mál. Tuttugu þættir höfðu hins vegar lagast í kjölfar sameininganna og tengdust allir þjónustu á vegum sveitarfélaga. Í sömu rannsókn (Grétar Þór Eyþórsson og Vífill Karlsson, 2018) kom jafnframt fram að oftar var það þannig að íbúar sem tilheyrðu stærra sveitarfélagi að baki sameiningunum voru ánægðari en þeir sem tilheyrðu minna sveitarfélaginu. Samt var það þannig að í 10 þáttum af 32 töldu íbúar minni sveitarfélaganna þjónustuna hafa batnað jafnvel þó svo hún hafi ekki batnað eins mikið og hjá stærri sveitarfélögunum að mati íbúa þeirra. Þetta voru þættirnir tónlistarskóli, íþrótta- og æskulýðsmál, dvalarheimili aldraðra, málefni fatlaðra, rekstur safna, félagsstarf aldraðra, barnaverndarnefndir, lið- veisla og ferðaþjónusta, forðagæsla og almannavarnir. Þarna koma fyrir þættir eins og tónlistarskóli, íþrótta- og æskulýðsmál og þættir sem tengjast aðbúnaði aldraðra en þá má einnig finna í núverandi könnun. Þó er athyglisvert að sjá viðhorf til tónlistarskólanna hafa batnað í könnuninni 2013 en það var eina þjónustan sem talin var betri í hreinum þéttbýlissveitarfélögum í núverandi könnun (árin 2016, 2017 og 2020). Á þessu sést að tölurnar frá 2013 styðja niðurstöður þessarar rannsóknar nokkuð vel en þó ekki að öllu leyti. Sameining lítils sveitarfélags við stórt bætir þjónustu við íbúa þess fámennara eða jaðarsetta, jafnvel þó svo að þjónustan batni meira hjá íbúum þess fjölmennara sem er nær sterkasta þjónustukjarnanum. Þetta á sérstaklega við um þjónustu innan fræðslumála, félagsþjónustu auk æskulýðs- og íþróttamála sem eru lang fjárfrekustu málaflokkar sveitarfélaga (í kringum 85% af heildarútgjöldum þeirra samanlagt) og ef til vill þeir mikilvægustu. Athygli vakti að þau hreinu dreifbýlissveitarfélög sem ráku sína eigin grunnskóla virtust ekki ráða við reksturinn án þess að það kæmi niður á annarri þjónustu. Höfundar vita ekki til þess að erlendar rannsóknir hafi verið framkvæmdar með sömu aðferða- fræði og hér og er því um að ræða nokkur nýmæli. Niðurstöðurnar styðja kenningar í hagfræði um stærðarhagkvæmni, sérstaklega þegar um er að ræða sérhæfð verkefni sem krefjast mikilla fjár- festinga (Boyes og Melvin, 1999; Rosen og Gayer, 2008). Aukin ánægja íbúa með þjónustu í dreif- býli blandaðra sveitarfélaga styðja einnig við kenningar um lægri kostnað við veitingu þjónustu á dreifðu eða víðfermu svæði í sterkari stjórnsýslueiningu (Palander, 1935). Niðurstöðurnar hafa því sérstaka þýðingu fyrir byggðaþróun dreifðra byggða á Íslandi, en þær styðja við samþjöppunarrökin (e. consolidationist argument) um að sameining minni sveitarfélaga leiði af sér stærðarhagkvæmni, skilvirkni, aukin gæði og aukinn mátt sveitarfélagsins til að standa undir þjónustu fyrir alla íbúa þess (Baldersheim og Rose, 2010; Steiner o.fl., 2016). Mikilvægt er að draga fram þennan sérstaka ábata sem íbúar dreifbýlis virðast njóta í bættri þjónustu í blönduðum sveitarfélögum. Hafa verður í huga að eldri íslensk rannsókn (Karl Benediktsson og Hjalti Nielsen, 2008) benti til þess að brott- flutningur hafi verið meiri frá svæðum með lágt þjónustustig. Það ætti því að vera kappsmál dreif- býlissamfélaga að efla þjónustu með sameiningu við blandað sveitarfélag þéttbýlis og dreifbýlis. Rannsókn þessi byggir á öflugum gögnum úr íbúakönnun landshlutanna og má það teljast nokkuð afrek að byggja slíkar greiningar á stóru úrtaki íbúa sem búa í dreifbýli á Íslandi. Þessi greining var gerð á gögnum íbúakannana 2016, 2017 og 2020 þar sem rúmlega 17.000 tóku þátt en rúmlega 2.000 svör nýttust í greiningu í þessari rannsókn vegna þess að eingöngu íbúar í dreifbýli voru til skoðunar (í dreifbýli blandaðra sveitarfélaga og hreinna dreifbýlissveitarfélaga). Í greininni er einnig að finna aðferðafræðilegt framlag. Hér er um afhjúpandi greiningu að ræða þar sem þátttakendur voru aldrei
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.