Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 21

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 21
Bjarki Þór Grönfeldt og Vífill Karlsson 21 .. spurðir út í áhrif sameininga í könnuninni heldur eingöngu hversu góð þjónustan væri í viðkomandi sveitarfélagi. Síðan voru sambærileg samfélög borin saman að öðru leyti en því að annar hópurinn var ósameinað dreifbýlissamfélag en hinn sameinað dreifbýlissamfélag. Einnig má telja að fræði- lega séð hafi aldrei áður verið leitað vísbendinga um gæði á þjónustu svo fámennra sveitarfélaga eins og hér og sveitarfélaga sem eru hrein dreifbýlissveitarfélög. Annar styrkleiki þessarar rannsóknar er að hún byggir bæði á aðhvarfsgreiningu og tveimur stikalausum prófum (Mann-Whitney og t-prófi) til hliðsjónar. Helstu veikleika rannsóknarinnar má rekja til gagnasafnsins (þrátt fyrir að það sé stórt). Gott hefði verið ef fengist hefði tilviljunarkennt úrtak af höfuðborgarsvæðinu, en það kemur þó ekki að sök í þessari rannsókn þar sem fáir koma þaðan inn í þessa úrvinnslu (sbr. Kjósarhreppur, dreifbýli í Mosfellsbæ o.s.frv.). Unga fólkið hefði mátt vera hærra hlutfall þátttakenda. Það kemur heldur ekki illa niður á þessari rannsókn þar sem íbúar í sveitum eru almennt eldri en þeir sem búa á þéttbýli. Þá voru ekki allir landshlutar með árin 2016 og 2017. Frekari rannsóknir þurfa að fara fram á afleiðingum sameininga fyrir íbúa í dreifbýli. Nú stendur yfir nokkurs konar átak í sameiningum sveitarfélaga út um land allt og fleiri blönduð sveitarfélög verða til. Mikilvægt er að sveitarfélög, landshlutasamtök og ráðuneyti sveitarstjórnarmála kanni árangur af sameiningum og fylgist vel með þróuninni. Rannsakendur ættu að endurtaka sambærilega rannsókn að einhverjum tíma liðnum. Sérstaklega áhugavert væri að greina íbúaþróun í dreifbýli eftir því hvort um sé að ræða hrein dreifbýlissveitarfélög eða blönduð. Það myndi taka niðurstöð- urnar sem kynntar voru hér á annað stig ef í ljós kæmi að blönduð sveitarfélög héldu betur í sína íbúa—og löðuðu jafnvel að sér nýja. Niðurlag Nýlegar niðurstöður rannsóknar á ábata sameininga sveitarfélaga sem ekki náði til þeirra allra fá- mennustu (Vífill Karlsson og Grétar Þór Eyþórsson, 2022) varð einn af helstu hvötum þessarar rannsóknar. Þar komu fram vísbendingar um að sameiningar þriggja eða fleiri sveitarfélaga væru líklegar til árangurs í formi samfélagslegs ábata innan viðkomandi sveitarfélaga en að árangur sam- eininga tveggja sveitarfélaga væri síðri þó að vissulega væri þar von líka. Núverandi rannsókn gefur til kynna að almennt virðast dreifbýlissamfélög geta komið betur út sameinuð stærri þjónustukjarna heldur en að reyna standa á eigin fótum í hreinu dreifbýlissveitarfélagi, ef marka má reynslu annarra dreifbýlissamfélaga af slíku sambýli. Það sést á því að íbúar í blönduðum sveitarfélögum eru ánægð- ari en íbúar hreinna dreifbýlissveitarfélaga með að minnsta kosti sjö þætti af þeim 13 sem voru til skoðunar. Ef sveitarfélög vilja samt reyna að standa á eigin fótum þá virðist allt mæla með því að þau kaupi skólaþjónustu af öðru sveitarfélagi ef kostur er, jafnvel þó þau falli undir skilgreininguna um sértekjusveitarfélög. Athygli vekur að vísbendingar komu fram um að óánægja væri meiri með þjónustu hreinna dreifbýlissveitarfélaga sem reka sína eigin skóla en þeirra sem gera það ekki. Niðurstöðurnar sem kynntar hafa verið hér benda eindregið til þess að sameiningar dreifbýlis- og þéttbýlissveitarfélaga skili árangri fyrir dreifbýlið. Þó niðurstöðurnar séu tilefni til bjartsýni, enda er það stefna stjórnvalda að fækka sveitarfélögum, þá skildi í upphafi endinn skoða. Lögþvingaðar sameiningar hafa gefið misjafna raun erlendis. Í Þýskalandi hafa þær skilað sparnaði í rekstri (Blesse og Baskaran, 2013) en vísbendingar eru um að lögþvingun hafi skemmt fyrir árangri af þeim í öðrum löndum (sjá t.d. dæmi frá Ástralíu: Drew o.fl., 2022; Svíþjóð: Hinnerich, 2009; og Japan: Nakazawa og Miyashita, 2013). Á Íslandi er sterk hefð fyrir sjálfsákvörðunarrétti íbúa í sameiningarmálum og ákvörðunartaka verður því að fara fram í opnu og lýðræðislegu ferli sem endar með kosningu allra íbúa. Í aðdraganda slíkra kosninga hér á landi er því mikilvægt að niðurstöður rannsókna sem þess- arar verði kynntar íbúum hreinna dreifbýlissveitarfélaga til þess að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um sameiningu. Dráttur á sameiningum virðist vera til þess fallinn að grafa undan gæðum þeirrar þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum og hafa greitt fyrir með sköttum sínum. Þjónusta sem er mjög mikilvæg börnum þeirra en ekki síður þjónusta viðkvæmra hópa samfélagsins, eins og eldri íbúa þar sem fólk getur verið veikt fyrir og mikilvægt að hlúð sé vel að hverjum og einum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.